Domusnova og Vilborg kynna nýtt í einkasölu.
EINSTAKLEGA GLÆSILEGT 5 HERBERGJA RAÐHÚS Á EINNI HÆÐ MEÐ BÍLSKÚR.
STÓR SUÐURSÓLPALLUR MEÐ HEITUM POTTI OG SKJÓLGIRÐINGU.INNKEYRSLA RÚMAR TVO BÍLA, HLEÐSLUSTÖÐ Í BÍLSKÚR.4 SVEFNHERBERGI SKV. TEIKNINGU EN Í DAG ERU ÞAU TVO OG RÚMGOTT SJÓNVARPSHOL.
TVÖ BAÐHERBERGI.Raðhúsið er 183,6 fm sem skiptist í 152,7 fm íbúð og 30,9 fm bílskúr.
Bílaplan steypt 2025.
Nánari upplýsingar veitir:Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.8918660 / vilborg@domusnova.is
Nánari lýsing:Forstofa með flísum á gólfi frá Vídd. Innangengt í bílskúr frá forstofu.
Stofa, borðstofa og eldhús eru saman í alrými með mikilli lofthæð og innfelldri lýsingu.
Eldhús, með fallegri innréttingu frá VOKE og eyju. Quarts steinn fra VOKE á innréttingu. Span helluborð og tveir ofnar frá AEG, annar ofninn sambyggður með ofni og örbylgju. Innfelld uppþvottavél frá AEG og innfelldur ísskápur einnig frá AEG.
Stofa/borðstofa liggja saman í opnu og björtu rými með útgengi á fallega verönd til suðurs
.Á svefnherbergisgangi eru tvö baðherbergi, tvö svefnherbergi og gott sjónvarpshol.
Hjónaherbergi er rúmgott með gluggum til norðurs. Góðir fataskápar.
Barnaherbergi er rúmgott.
Barnaherbergi II og IIII - þar er nú er rúmgott sjónvarpshol við enda svefnherbergisgangs - á teikningu er gert ráð fyrir tveimur svefnherbergjum þar og auðvelt er að breyta því eins og teikningin gerir ráð fyrir. Húsinu fylgja 2 hurðar á þau svefnherbergi sem teikning gerir ráð fyrir.
Baðherbergi I með baðkari, upphengdu salerni, handklæðaofni og góðri innréttingu. Blöndunartæki frá Hansgrohe. Útgengi frá baðherbergi á baklóð.Innrétting frá Fríform.
Baðherbergi II með sturtu, upphengdu salerni og innréttingu. Blöndunartæku frá Gröhe. Flísar á gólfi og á einum vegg. Innrétting frá Fríform.
Þvottahús er rúmgott með flísum á gólfi. Vaskur og góð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Gott geymsluloft er ofan við þvottahús.
Bílskúr er 30,9 fm. Epoxymálning á gólfi. Gott geymsluloft er í bílskúr. Steypt plan framan við bílskúr rúmar tvo bíla. Tesla hleðslustöð í bílskúr.
Sólpallur er 50 fm með lerkigólfi. Hitaveitu pottur á palli með stýringu. Skjólpallur umlykur pallinn.
Gólfefni: 14 mm harðparket frá Byko á herbergjum og í alrými (stofu/borðstofu og eldhúsi). Flísar á baðherbergjum og forstofu frá Vídd.Hiti í gólfum.
Dúkur í lofti frá Enso með innfelldri lýsingu.
Plejd ljósastýring (hægt að stýra ljósunum í símanum)
Einstaklega fallegt raðhús á einni hæð á fjölskylduvæum stað á Akranesi.
Húsið er mjög vel skipulagt með mikilli lofthæð. (325 cm í stofu og 270 cm í herbergjum)
Leikskólar í göngufæri.Eigendur hafa framkvæmt eftirfarandi m.a.:- Skipt um þak vor 2024
- Bílaplan steypt sumar 2025
- Gólf í bílskúr málað með Epoxymálningu.
Nánari upplýsingar veitir:Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.891-8660 / vilborg@domusnova.is
Nánar um húsið:- Gegnheilar hurðar frá GKS og eldvarnarhurð inní bílskúr
- Lofthæð hæst 325 hæst í stofunni og 270 í herbergjum
- Plejd ljósastýring (hægt að stýra ljósunum í símanum)
- Útveggir einangraðir að innan, rakarvarnarlag og lagnagrind á alla útveggi, loft einangrað ásamt rakarvarnalagi og lagnagrind.
- Sökklar:Undirstaða hússins er steinsteypt botnplata og sökklar á þjappaðri fyllingu. Sökklar eru einangraðir með 100 mm frauðplastseinangrun. Undir steyptri gólfplötu er einangrað með 75 mm frauðplasti.
- Fráveitulagnir :Frárennslislagnir eru pvc plaströr í grunni og undir botnplötu, en plaströr vel varin og einangruð í veggjum.
- Útveggir:Útveggir eru úr 45x145 timbri, klæddir að utan með 9mm krossvið, þar utan á kemur 60mm loftunargrind og að lokum klætt með flísum (Cembrit). Grind í útvegg er einangruð með 150mm steinull. Að innan kemur rakavarnarlag ( þolplast). Það sama gildir um frágang lofts að innan eins og útveggi.
- Gluggar, hurðir og gler: Bílskúrshurð er stálfellihurð. Hurðir og gluggar eru álklæddir timburgluggar.
- Neysluvatnslagnir: Allar neysluvatnslagnir eru PEX lagnir, rör í rör, frá mælagrind í bílskúr að hverju tæki og tengikrönum.
- Gólfhiti: Hitakerfið er með gólfhitakerfi með deilikistu við inntaksgrind í bílskúr. Gólfhitakerfið er byggt upp með slaufum sem tengjast deilikistu.
Nánari upplýsingar veitir:Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.8918660 / vilborg@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.