LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu glæsilegt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr og óhindruðu sjávarútsýni í Kópavogi. Vönduð eign með mikilli lofthæð, rúmgóðu alrými og gólfsíðum gluggum sem njóta fallegs útsýnis. Í stofurými er glæsilegur arinn sem setur skemmtilegan svip á rýmið.
Birt stærð eignarinnar er 265,0 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er bílskúr 29,8 fm.
Eignin skiptist í stofu, borðstofu og eldhús í opnu rými, sjónvarpsherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi, fjögur barnaherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr með geymslu.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is.
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.