Helgafell fasteignasala kynnir til sölu 202,2fm. endaraðhús með bílskúr við Völvufell 24.Raðhúsið skiptist uppí 134,8fm. hæð, 43,9fm. kjallara sem hefur verið í útleigu og 23,5fm bílskúr.Aðalíbúðin skiptist í anddyri, stofa/borðstofa, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Neðri hæðin er með miðrými, svefnherbergi, salerni og baðherbergi.Nánari lýsing 1. hæðinSnyrtileg aðkoma að húsinu, hiti í stétt.
Anddyri er með flísum á gólfi og skáp í anddyri. Úr anddyrinu er gengið niður í kjallara sem hefur verið í útleigu.
Alrými, borðstofa og stofa er með harðparket á gólfi, búið er að taka niður loftin og setja innfellda lýsingu í loftið. Útgengt út í afgirtan suðurgarð úr stofunni.
Eldhús var allt endurnýjað 2023/2024, eldhúsinnrétting með stein, mikið og gott skápapláss. Nýleg tæki s.s. ofn og örbylgjuofn/ofn í vinnuhæð, stórt helluborð, innbyggð uppþvottavél og pláss fyrir tvöfaldan ísskáp.
Hjónaherbergi með harðparket á gólfi og nýlegum tvöföldum fataskáp.
Þrjú barnaherbergi með harðparket á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi var uppfært 2023, Flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, stór spegill yfir innréttingunni, baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús með flísum á gólfi, góðri innréttingu, skápum, borðplötu og vask.
Neðri hæðinKomið er níður í alrými þar sem eru flísar á gólfi. Búið er að setja upp snyrtilega eldhúsinnréttingu. Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa. Sér salerni með flísum á gólfi. Rúmgott herbergi sem nýtt er sem svefnherbergi. Rýmið niðri er gluggalaust en búið er að koma fyrir góðri loftræstingu með út og innsogi.
BílskúrBílskúrinn er 23,5fm. með flísum á gólfi. Bílskúrshurðaopnari. Gluggi í enda bílskúrsins.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð bæði að innan og lóðin hefur verið löguð mikið.
Nýlegt eldhús, baðherbergi, gólfefni, nýleg rafmagnstafla og dregið í nýtt rafmagn. Þak var yfirfarið og skipt um járn og rennur árið 2009
Opna söluyfirlit fyrir eignina hér.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - Sími: 566 0000Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.