Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun og Ólafur H. Guðgeirsson lgfs., kynna afar notalega neðri sérhæð fyrir er 60 ára og eldri. Íbúðin er í enda tveggja hæða húss, þar sem eru samtals 10 íbúðir, á afar rólegum stað innst í götu. Íbúðin er skráð 104,2 fermetrar samkvæmt fasteignamati, með sér inngangi í enda hússins og afgirtri verönd í garði. Tvö herbergi, rúmgóð og björt stofa, sjónvarpsrými innaf stofu, þvottahús og rúmgóð geymsla. Vel hönnuð íbúð með góðu útisvæði á rólegum og sérlega skjólssælum stað í suðurhlíðum Kópavogs.
Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.isNánari lýsing:Anddyri með flísum á gólfi og stórum fataskáp.
Úr anddyri er komið inn í opið hol þaðan sem er gengið í önnur rými íbúðarinnar. Til vinstri frá inngangi er rúmgott herbergi með glugga við hlið inngangs; við hlið þess er opið rými sem nýtist vel sem sjónvarpstofa. Gengt inngangi er lítill gangur frá holi, þar sem er geymsla og þvottahús til vinstri, baðherbergi beint framundan og til hægri rúmgott svefnherbergi með fataskáp og glugga að garði. Baðherbergi er flísalagt, gólf og veggi, með ágætri innréttingu undir vaski og stórum sturtuklefa úr hleðslugleri. Þvottahús er við hlið baðherbergis en þar innaf er ágæt geymsla.
Stofa er bjort og rúmgóð, en stofa, hol og sjónvarpsrými eru í einu opnu rými sem gefur gott flæði og birtu. Nýlegt fallegt viðarparket er á rýminu og herbergjum.
Til hægri við stofu er gengið í eldhúsið. Þar er stór upprunaleg innrétting sem lítur vel út, flísar á milli skápa og á gólfi, og borðkrókur. Mögulega væri hægt að taka niður vegg milli eldhúss og stofu og búa til opið eldhús, og fá þannig enn meiri birtu og rými.
Hér er um að ræða bjarta og vel hannaða íbúð fyrir 60+, sem auðvelt er að gera að sinni.Kostnaður kaupanda af kaupum:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook