Nýtt á skrá! Vindakór 3 í Kópavogi - Frábær fjölskylduíbúð með tveimur sérafnotareitum / stór afgirt verönd til suðurs og hellulögð verönd til norðurs.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega fallega og vel skipulagða 129,8 fermetra 4ra herbergja búð á 1. hæð með rúmgóðum afgirtum sérafnotareiti til suðurs í fallegu fjölbýlishúsi með lyftu við Vindakór 3 í Kópavogi. Alrými er opið og bjart með gluggum til suðurs, austurs og norðurs. Útgengi á sérafnotareit frá stofu. Sér þvottaherbergi innan íbúðar og sérbílastæði í bílakjallara. Sérgeymsla í kjallara er 8,7 fermetrar að stærð.
Lóðin er afar snyrtileg með tyrfðum flötum á baklóð og hellulögðum stéttum/malbikuðum stæðum fyrir framan hús. Snyrtilegur bílakjallari.
Frábært staðsetning í næsta nágrenni við Hörðuvallaskóla, Kórinn íþróttasvæði og verslun og þjónustu. Stutt í útivistarparadís með glæsilegum göngu- og hjólaleiðum sem liggja m.a. að Elliðavatni og inn í Heiðmörk.
Nánari lýsing:Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum.
Stofa: Er rúmgóð með parketi á gólfi. Rúmar vel setustofu og borðstofu. Gluggar til suðurs og austurs og útgengi á sérafnotareit.
Sérafnotareitur I: Er rúmgóður, afgirtur og snýr til suðurs.
Eldhús: Með parketi á gólfi, eldhúsinnréttingu frá Sérverk og glugga til norðurs. Stál bakaraofn, spansuðu helluborð, vifta og tengi fyrir uppþvottavél. Eldhús er opið við stofu og er útgengi á hellulagða verönd til norðurs.
Sérafnotareitur II: Snýr til norðurs með útgengi frá eldhúsi.
Hjónaherbergi: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar og sturta. Innrétting við vask, upphengt salerni og útloftun.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Sjónvarpshol: Er staðsett inn af alrými með parketi á gólfi.
Þvottaherbergi: Er staðsett inn af íbúð með tenglum fyrir þvottavél/þurrkara og opnanlegum glugga.
Bílastæði í bílakjallara: Er staðsett í stnyrtilegum bílakjallara.
Geymsla: Er staðsett í kjallara (merkt 0020) og er 8,7 fermetrar að stærð.
Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg og er staðsett í sameign hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali og lögfræðingur í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is