Borg fasteignasala kynnir fallegt steinsteypt parhús á þremur hæðum við Vífilsgötu í Reykjavík. Skv. Þjóðskrá Íslands er eignins skráð alls 176,4 fm. Á neðstu hæð hússins er stúdíó-íbúð sem er endurnýjuð á mjög smekklegan hátt. Í garði er útiskúr og gróðurhús. Sér innkeyrsla/bílastæði við hús. Op...
Sýna meira
Borg fasteignasala kynnir fallegt steinsteypt parhús á þremur hæðum við Vífilsgötu í Reykjavík. Skv. Þjóðskrá Íslands er eignins skráð alls 176,4 fm. Á neðstu hæð hússins er stúdíó-íbúð sem er endurnýjuð á mjög smekklegan hátt. Í garði er útiskúr og gróðurhús. Sér innkeyrsla/bílastæði við hús. Opið hús: Vífilsgata 1, 105 Reykjavík. Eignin verður sýnd laugardaginn 20. febrúar 2021 milli kl. 14:00 og kl. 14:30. Vinsamlegast tilkynnið komu á netfangið Nánari lýsing; Á fyrstu hæð er komið inn í nýlega flísalagða forstofu með góðu fatahengi. Tvær samliggjandi stofur eru á hæðinni og önnur þeirra með arni. Eldhús með fallegri uppgerði innréttingu og vönduðum tækjum. Ný Smeg eldavél og háfur í eldhúsi. Flísar á gólfi í eldhúsi og flísalögð gestasnyrting með upphengdu klósetti á fyrstu hæð. Á efri hæðinni eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Baðherbergi er flísalagt með baðkari og glugga. Geymsluris er yfir allri hæðinni. Ný steyptar og málaðar svalir með útsýni yfir Hallgrímskirkju. Í kjallara er þvottahús og köld geymsla sem tilheyra íbúð á efri hæð.Í kjallara er algerlega endurnýjuð íbúð sem bæði er hægt að hafa sem stúdío eða íbúð með stóru svefnherbergi og er aðeins léttur veggur sem skilur á milli. Í kjallara er stórt baðherbergi, ný eldhúsinnrétting með innbyggðri þvottavél, uppþvottavél og ískáp. Auðveldlega er hægt að hafa húsið sem eina heild ef þess er óskað. Leigutekjur í stúdío íbúð núna eru 155 þúsund á mánuði. Framkvæmdasaga:Skv, upplýisngu frá fyrri eiganda var 2001 rafmagn endurnýjað. Búið að skipta um gler og pósta og lausafög og setja hljóðeinangri gler frá Danfoss (2012). Þak endurnýjað. Múr utan á húsi innsiglaður. Gróðurhús með frostfríu undirlagi.Núverandi eigendur: Klóak endurnýjað út í götu. Hitaveitulagnir í kjallara endurnýjaðar og hiti settur í gólf. Kjallari allur endurnýjaður, nýtt baðherbergi, eldhús og allar lagnir. Nýtt loft í kjallara, hiti í gólfum og hljóðeinangrað milli hæða. Allar hurðir pússaðar upp og málaðar. Parket pússað upp, lakkað og hvíttað. Húsið er nýmálað að innan að stórum hluta. Tröppur við inngang úti fræsaðar og gerðar upp. Nýjar þakrennur og snjó vörður á norðurhlið húss.Hækkað grindverk í garði allan hringinn sem hjóðeinangrar hljóð frá götu. Nýlegt þak á útiskúr. Ný gaseldavél og vifta frá SMEG. Nánari upplýsingar veita:Börkur Hrafnsson, lögg. fasteignasali. s. 892-4944. og Úlfar Þór Davíðsson, lögg. fasteignasali. s. 788-9030.