Snyrtileg 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi við Víðimel 58 í vesturbæ Reykjavíkur.
RE/MAX og Þorsteinn Ólafs löggiltur fasteignasali kynna snyrtilega 4ra herbergja, 93,4 m2 íbúð á jarðhæð með sérinngangi í litlu fjölbýlishúsi á horni Víðimels og Hofsvallagötu. Möguleiki er að gera fjórða svefnherbergið þar sem borðstofan er í dag. Samkvæmt FMR er íbúðin 89,1 m2 og geymslan 4,3 m2.Skv. upplýsingum húsfélagsins hafa eftirfarandi framkvæmdir verið við fasteignina:2002 Fráveitulagnir endurnýjaðar
2012 Hús sprunguviðgert og gluggar málaðir að utan.
2017 Dren lagt við austurgafl hússins.
2018 Hellulagt plan við húsið .
2019 Allir gluggar og gler endurnýjað í íbúðinni að undanskildu glerinu fyrir utan baðherbergisgluggann.
Nánari lýsing:Forstofan er flísalögð með skóskáp.
Gangur með parketi á gólfi.og fatahengi.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu og flísum á milli efri og neðri skápa. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingunni. Parket á gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi,
frá stofunni er opið inn í borðstofu sem væri hægt að breyta í fjórða svefnherbergið ef vill.Hjónaherbergi er með fataskáp og parketi á gólfi
Barnaherbergin eru tvö með parketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt með hvítri innréttingu, sturtu og opnanlegum glugga.
Geymsla með hillum er með sérinngangi við inngang í íbúðina.
Innangengt er úr íbúðinni í
sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð í húsinu er með eigin vélar.
Víðimelur 58 er falleg eign á frábærum stað. Stutt er í helstu verslun og þjónustu og einnig skóla og leikskóla. Fallegar göngu- og hjólaleiðir, stutt í miðborgina, Háskóla Íslands og sundlaug Vesturbæjar o.fl.Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Ólafs lögg. fasteignasali í síma 842-2212, to@remax.is.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu 69.900 m. vsk.