Víðibrekka, 805 Selfoss í landi Búrfells. Steypt plata, hitaveita, heitur pottur, lokað svæði. Glæsilegt útsýni.Fasteignaland kynnir: Sumarhús við Víðibrekku 16 í landi Búrfells í Grímnes-og Grafningshreppi. Um er að ræða 94,1 fm sumarhús ásamt millilofti sem var byggt árið 2006 samkvæmt Húsnæðis og mannvirkjastofnun. Í húsinu er hitaveita, steypt plata með gólfhita.
Glæsilegt útsýni, lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið). Húsið hefur verið endurnýjað og stækka og lauk framkvæmdum í árslok 2023. Endunýjað að innan og klætt að hluta til að utan.
Húsið skiptist: Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi. Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél. Tvö stór herbergi með flísum á gólfi. Annað með góðu skápaplássi. Eldhús og stofa í sama rými með flísum á gólfi, viðarinnréttingu með vönduðum tækjum. Stofan er með flísum á gólfi og útgengi út á suður sólpall. Kamina í stofu.
Milliloft: Hol með furublönkum á gólfi. Tvö góð herbergi með opnanlegu fögum
Geymsla: Gengið inn af sólpalli við inngang hússins. Einnig er innangengt inn í fjorstofu. Geymslan er flísalögð en þar eru inntök hússins.
Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðinu, heitur pottur.
Geymsla 2: Bjálkahús ca. 9 fm og nýtt sem geymsla og vinnuherbergi.
Geymsla 3: Lítil gámur ca. 4 fm nýttur fyrir garðáhöld og útihúsgögn.
Möguleiki er að fá hluta af búslóð með í kaupum á eigninni.
Þetta er falleg eign og vel um gengið. Góða aðkoma og næg bílastæði.
Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Selfoss er aðeins í 16 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu. Frá Reykjavík eru aðeins um 70 km sé ekið um Hellisheiði.
Upplýsingar gefa:
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s 898-0598, netfang: arni@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali, s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is