Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is
Vestursíða 10 íbúð 201 - Snyrtileg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli í Síðuhverfi - stærð 80,0 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sér geymslu í kjallara.
Nánari lýsing:Forstofan er með flísum á gólfi og fatahengi.
Eldhúsið er með ljósri innréttingu, flísum á milli skápa, dúk á gólfi og borðkrók.
Stofan er rúmgóð með dúk á gólfi og þaðan er gengið út á steyptar svalir til vesturs.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með dúk á gólfi og fataskápum.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósum skáp undir handlaug, WC, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga.
Sameiginlegt þvottahús er staðsett á 3. hæð hússins.
Rúmgóð sér geymsla er í kjallara, þar er lakkað gólf og hillur.
Annað:- Húsið var múrviðgert og málað að utan árið 2022
- Stutt í leik-, grunn- og háskóla
- Sameiginlegt rými er á gang á annarri hæð
- Góð staðsetning í vinsælu hverfi
- Snyrtileg sameign
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.