Íbúð
Einbýlishús á þremur pöllum (neðri hæð, millipallur, efri hæð) og aukaíbúð á jarðhæð. Mögulegt að opna á milli aðalíbúðar og aukaíbúðar. Fjögur svefnherbergi í aðalíbúð, eitt í aukaíbúð. Baðherbergi, þvottahús, geymsla, forstofa, gangur, bílskúr, eldhús með borðkrók, sjónvarps- og arinstofa, stofa og borðstofa í aðalíbúð. Svefnherbergi, fataherbergi/geymslu, forstofa, baðherbergi, eldhús og stofa í aukaíbúð.
Stofa
Stór stofa og borðstofa á efri hæð með parketi og flísum á gólfum. Stórir gluggar, góð lofthæð og stórfenglegt útsýni. Útgengt á stóra verönd með skjólveggjum og heitum potti.
Eldhús
Aðalíbúð: Bjart og rúmgott eldhús með hvítri innréttingu, borðkrók og flísum á gólfi. Í innréttingu er ofn, helluborð og háfur (Amerískur ísskápur). Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu. Aukaíbúð: Bjart og vel skipulagt eldhús með parketi á gólfi og hvítri Ikea eldhúsinnréttingu.
Svefnherbergi
Aðalíbúð: Fjögur svefnherbergi. Svefnherbergi 1 og 2 (neðri hæð): Parket á gólfi. Svefnherbergi 3 (hjónaherbergi): Mjög rúmgott með parketi og fataskáp. Tengist fataherbergi. Svefnherbergi 4: Mjög rúmgott með parketi (stækkað úr tveimur herbergjum). Aukaíbúð: Svefnherbergi 5 með parketi á gólfi. Tengist fataherbergi/geymslu.
Baðherbergi
Aðalíbúð (efri hæð): Endurnýjað 2024. Nýjar veggflísar, upphengt klósett, walk-in sturta, vaskaborð með marmara og lausum skáp. Loftgluggi. Mögulegt að stækka inn í fataherbergið. Aukaíbúð: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting og sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél.
Þvottahús
Aðalíbúð (neðri hæð): Rúmgott þvottahús með flísum á gólfi, innréttingu, vinnuborði og vaski. Útgengt í garð að vestanverðu. Aukaíbúð: Tengi fyrir þvottavél inni á baðherbergi.
Geymsla
Aðalíbúð: Geymsla undir stiga á neðri hæð (mögulegt að breyta í gestasalerni, lagnir til staðar). Fataherbergi tengt svefnherbergi 3 á efri hæð. Skúrar: Tveir geymsluskúrar í garði, sá stærri einangraður með rafmagnsofni.
Bílskúr
Innbyggður bílskúr (49,1 m²) á neðri hæð með tveimur innkeyrsluhurðum og inngönguhurð. Innangengt af gangi. Með hillum, hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla, köldu og heitu vatni. Nýmálað gólf. Stórt hellulagt bílastæði með snjóbræðslu.