Miklaborg kynnir: Sannkölluð náttúruperla með góðum húsakosti og víðsýni. Bæjarstæðið eitt það fallegasta á landinu eins og sjá má á www.vesturhopsholar.com og jörðin er mjög vel staðsett fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu, einungis um 10 kílómetra frá Hvítserk sem er fjölfarnasti ferðamannastaðurinn á svæðinu. Vesturhópshólar er landmikil (1.364 ha) og þykir ein besta bújörðin í sveitinni, með mikið ræktar- og beitiland. Á Hólafjalli er afréttur og gott rjúpnaveiðiland. Á Vesturhópshólum var lengi stundaður hefðbundinn búskapur en undanfarið hafa eigendur stundað þar hestamennsku og frístundabúskap. Bærinn dregur nafn sitt af einkennandi hólum í fjallinu fyrir ofan bæinn en einkavegur frá Vatnsnesvegi liggur að bænum og er mikið næði fyrir umferð enda um átta hundruð metrar að Vatnsnesveginum. Saga fylgir húsinu en þar fæddist og var uppalinn Jón Þorláksson en hann var landsverkfræðingur, kaupmaður í Reykjavík, seinna formaður Íhaldsflokksins, fyrsti formaður Sjálfstæðisflokksins, fjármálaráðherra, forsætisráðherra og borgarstjóri í Reykjavík. (heimild Wikipedia)
Frá bæjarhlaðinu er stórbrotið útsýni yfir Vesturhóp, Vatnsdalsfjall, Víðidalsfjall og björgin á Sigríðarstaðasandi. Óskað er eftir tilboðum í jörðina.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn Valdimarsson, sími: 6955520, netfang: jon@miklaborg.is.
Á túni við bæinn hefur verið útbúin 450 metra malarflugbraut fyrir einkaflugvélar með möguleika á 400 metra lengingu.
Á jörðinni og í sveitinni í kring eru frábærir útivistarmöguleikar; reiðleiðir, gönguleiðir og möguleikar á stang- og skotveiði. Hólaá hlykkjast um jörðina og tilheyrir hluti hennar Vesturhópshólum. Á haustin gengur sjóbirtingur í ánna en ekkert veiðifélag er um hana. Þegar gengið er upp Hólafjall frá bænum opnast stórbrotinn dalur með fallegri tjörn og háum þverhníptum hamraveggjum.
Íbúðahúsið er 180,5 m2 samkvæmt FMR með sex svefnherbergjum og hefur fengið gott viðhald, meðal annars var skipt um gler sumarið 2023, húsið málað og steypuviðgerðir að utan árið 2021. Önnur hús eru stór geymsla með bílskúr, fjárhús, hlaða og fjós sem nýtt hefur verið sem hesthús. Geymslan, bílskúrinn, fjárhúsið ásamt hlöðu og fjós þurfa viðhald.
Á jörðinni stendur einnig Vesturhópshólakirkja, byggð 1878 og kirkjugarður við hann.
Vesturhópshólar eru um 36 kílómetra frá Hvammstanga og 55 kílómetra frá Blönduósi. Stutt er í Hópið, Borgarvirki, selalátur við Húnaflóa, svarta sanda, Vesturhópsvatn og nokkrar af þekktustu laxveiðiám landsins.
Upplýsingavefur um eignina: www.vesturhopsholar.com
Einstaklega falleg jörð sem eins og áður sagði getur nýst vel fyrir ýmis konar ferðaþjónustu en einnig er jörðin kjörin fyrir samheldinn hóp fjölskyldu eða vina sem vilja finna sér kyrrlátan og einstakan stað sem nýtist allt árið um kring.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu






















