Eignamiðlun kynnir:
Frábærlega staðsett nýlega endurgerð 132,9 fm sérhæð með sér inngangi í fjórbýlishúsi við Vesturgötu í Reykjavík. Nýtt afar glæsilegt eldhús með vönduðum Meile tækjum, nýtt parket á gólfum, nýtt baðherbergi. Sérsniðnar rúllugardínur fyrir öllum gluggum. Samkvæmt fasteignamati er íbúðin 120,4 fermetrar, geymslur í geymsluhúsi á baklóð 12,5 fermetrar. Örstutt í miðbæinn. Íbúðin getur verið laus fljótlega eftir kaupsamning. Kaupandi hæðarinnar getur einnig fengið keypta 70 fermetra íbúð á jarðhæð hússins, sem áður var tengd hæðinni með stiga innan íbúðar.Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA rekstrarhagfræðingur, lgfs.í síma 663-2508, olafur@eignamidlun.is***Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.***Gengið er inn í eignina af sólpalli á baklóð hússins, þar sem eru steyptar tröppur upp að inngangi íbúðarinnar. Komið er inn í forstofurými hæðarinnar, þar sem þvottahús er til hægri, svefnherbergi beint framundan og eldhús og stofur til vinstri.
Eldhúsið er mjög rúmgott með stórri eldunareyju, vandað Miele helluborð með innbyggðum gufugleypi í eyjunni. Pláss fyrir fjóra stóla við eyjuna. Stór innrétting á vegg, tveir innbyggðir ofnar, ísskápur og uppþvottavél, allt frá Miele, gott skápapláss og gott vinnupláss. Melmid plötur með marmaraáferð á borðum og milli skápa. Innrétting og tæki er nýtt og afar glæsilegt, en eldhúsið er bjart og vistlegt með gluggum í tvær áttir.
Úr eldhúsrými er opið í stóra bjarta stofu með gluggum að Vesturgötu. Þaðan liggur stuttur gangur í stórt svefnherbergi, en úr ganginum lág áður stigi niður á jarðhæðina þar sem nú er 70 fermetra sér íbúð. Þá íbúð er einnig hægt að fá keypta ef áhugi er á.
Milli forstofu og eldhúss er gangur sem liggur að öðru svefnherbergi, en á ganginum er einnig nýuppgert glæsilegt baðherbergi með gráum flísum á gólfi og veggjum að hluta, göngusturtu, handklæðaofni og innréttingu. Við forstofu er rúmgott þvottahús með glugga, flísum á gólfi, innréttingu og mögleikum á að setja upp vask og salerni.
Eignin er mikið endurnýjuð á síðustu árum, afar vandað eldhús og baðherbergi, nýtt fallegt harðparket á gólfum, listar meðfram loftum ásamt dyrum og gluggum endurgert sem næst upprunalegu horfi. Húsið hefur alla tíð allt verið í eigu sömu fjölskyldu og hefur ytra byrgði þess fengið gott viðhald eftir þörfum gegnum árin. Að sögn seljanda hefur allt gler verið endurnýjað, frárennsli hefur verið endurnýjað út í götu, bæði neysluvatnslagnir og ofnalagnir sömuleiðis.
Fasteignamat 2025 er 93,1 milljón
Fasteigna- og fráveitugjöld 2025 eru 334.098,-
Frábær staðsetning í Vesturbænum, á eftirsóttum stað skammt frá miðbænum. Örstutt í verslanir og helstu þjónustu. Göngurfæri í miðbæinn.Kostnaður kaupanda af kaupum:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook