ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Vesturberg 4, 111 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 04-02,, birt stærð 106.4 fm.Eignin er samkvæmt FMR 106,4 fm, íbúð 100 fm og geymsla 6,4 fm,Lýsing: Eignin samanstendur af fjórum svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúsi, stofu og borðstofu. Eldhús er ... Sýna meira
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Vesturberg 4, 111 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 04-02,, birt stærð 106.4 fm.Eignin er samkvæmt FMR 106,4 fm, íbúð 100 fm og geymsla 6,4 fm,Lýsing: Eignin samanstendur af fjórum svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúsi, stofu og borðstofu. Eldhús er nýlega tekið í gegn, rúmgóð eldhúsinnrétting með eyju, innbyggð uppþvottavél, span helluborð, hangandi gufugleypir, bakaraofn í vinnsluhæð, svört blöndunartæki og svartur undirlímdur vaskur. Stofa er í alrými með borðstofu og eldhúsi. Glæsilegt niðurgrafið flísalagt sjónvarpsrými. Búið að vegghengja panel með lýsingu að neðan og ofan. Gangur sem tengir saman herbergi, eldhús og stofu. Þar er að finna góðan skáp með sérstakri útdraganlegri ræstigrind. Baðherbergi er sérstaklega glæsilegt, flísalagt hólf í gólf, walk in sturta, frístandandi handlaug, rafmagns-handklæðaofn, baklýstur stór hringspegill og vegghengt salerni. Herbergi I er rúmgott með skápumHerbergi II er rúmgott með skápumHerbergi III er lítið barnaherbergi/skrifstofaHerbergi IIII er gott hjónaherbergi með rúmgóðum skápum. Geymsla sem er 6,4 fm og hjólageymslu má finna á jarðhæð í sameign. Sumarið 2022 var farið í mikla endurbætur á íbúðinni:Skipulagi í íbúð var breytt og eldhús fært í stofu, ekki eru til teikningar.Einnig var inngangi inn á baðherbergi breytt og stækkað.Skipt um öll gólfefni, Wild West Oak parket frá Parki á eldhúsi, borðstofu, gangi og herbergjum.Baðherbergi var endurnýjað en þar er að finna glæsilegar 60x60 flísar úr VÍDD, blöndunartæki ýmist úr tengi eða bauhaus. Sérsmíðuð handklæðahilla úr harðvið fyrir neðan vask. Skipt um allar hurðar innan íbúðar. Settir upp fataskápar í herbergjum, forstofu og á ganginn. Sólbekkir endurnýjaðir og múrað í kring. Íbúðin öll máluð í Angora Light úr sérefni. Farið yfir rafmagn í allri íbúðinni, skipt um tengla og rofa, sett svart. Skipt um þau gler sem þurfti í íbúðinni. Tréflísar settar á svalir. Framkvæmdir á húsi:- Austur og suður hlið klædd 2009- Skipt um glugga á austur og suðurhlið 2009- Skipt um alla glugga að framan, sameignargluggar og eldhúsgluguggar skipt um 2017/2018- Skipt um stofuglugga og svalarhurð sumarið 2021- Gler og svalarhandrið sumarið 2021 - Skipt um pappa og járn á þaki 2022- Húsið málað 2022Sameign nýlega tekin í gegn, rafmagnstafla, skipt um eldvarnarhurðar, málað, teppalagt, flísalagt, hurðir í geymslu, máluð gólf, útidyrahurðir ofl. Nánari upplýsingar veitir/veita:Páll Þorbjörnssonlöggiltur fasteignasali,í síma 560-5501,tölvupóstur Helgi Bjartur Þorvarðarssoní námi til löggildingar / lögfræðingurí síma 7702023tölvupóstur ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Víkurbraut 62, 240 Grindavík - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.