Oscar Clausen lfg. og Domusnova fasteignasala kynna í einkasölu vel skipulagða tveggja herbergja íbúð í Vesturbergi 122 Samkvæmt Fasteignaskrá Íslands er eignin skráð 60,8 m2 en þar af er 5,6 m2 geymsla. Nánari lýsing: Forstofa: nýlegt ljóst parket á gólfi.Eldhús: ljósar flísar á gólfi, nýleg eldhús... Sýna meira
Oscar Clausen lfg. og Domusnova fasteignasala kynna í einkasölu vel skipulagða tveggja herbergja íbúð í Vesturbergi 122 Samkvæmt Fasteignaskrá Íslands er eignin skráð 60,8 m2 en þar af er 5,6 m2 geymsla. Nánari lýsing: Forstofa: nýlegt ljóst parket á gólfi.Eldhús: ljósar flísar á gólfi, nýleg eldhúsinnrétting, með hvítum flísum á milli efri og neðri skápa.Inn af eldhúsi er smá geymsla/búr, með glugga sem notað er sem þvottahús.Stofa: nýlegt ljóst parket á gólfi, frá stofu er útgengt út á svalir sem snúa í vestur og ná síðdegis- og kvöldsól. Herbergi: nýlegt ljóst parket á gólfi, fataskápar. Baðherbergi: hefur nýlega verið tekið í gegn, flísar á gólfi, baðkar og upphengt salerni.Geymsla: er staðsett á jarðhæð. Að sögn eiganda er nýlegt gler í gluggum í eldhúsi, þvottahúsi, herbergi og stofu.Sameiginlegt þvottahús á jarðhæð, sem og vagna- og hjólageymsla. Eignin er vel staðsett, og stutt er í alla þjónustu s.s verslun, bókasafn, Fjölbrautarskólinn í Breiðholti, Breiðholtslaug, World Class, íþróttasvæði Leiknis, Gerðuberg menningarmiðstöð. Í Hólagarði er Bónus og einnig fleiri verslanir. líkamsrækarstöð.Nánari upplýsingar veita:Oscar Clausen löggiltur fasteignasali / s.861 8466 / Skrifstofa / s.527-1717 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.