Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna fallega 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu glæsilegu 3 hæða lyftuhúsi. Eignin er samkvæmt fasteignaskrá 60 fm. þ.a. er íbúðarhluti 51,6 fm. og geymsla 8,4 fm., yfirbyggðar svalir 8,3 fm. Mjög góð staðsetning í þessu v... Sýna meira
Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna fallega 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu glæsilegu 3 hæða lyftuhúsi. Eignin er samkvæmt fasteignaskrá 60 fm. þ.a. er íbúðarhluti 51,6 fm. og geymsla 8,4 fm., yfirbyggðar svalir 8,3 fm. Mjög góð staðsetning í þessu vinsæla hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, sundlaug og líkamsrækt.TILVALIN FYRSTU KAUP- AFHENDING VIÐ KAUPSAMNING ÍSSKÁPUR - UPPÞVOTTAVÉL - ÞVOTTAVÉL OG ÞURRKARI FYLGJA MEÐ.Eignin skiptist í forstofa, eldhús, stofu/borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi / þvottahús, geymslu sem staðsett er í sameign og sameiginlega vagna- og hjólageymslu.SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXSkipulag eignar:Forstofa: Gengið er beint inn í alrými, góður fataskápur frá Axix er á móti inngangi. Stofa / borðstofa: Í alrými er rúmgóð stofa / borðstofa með útgengi út á yfirbyggðar svalir, parket á gólfi. Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með miklu skápaplássi, innfelld lýsing í lofti frá Lumex, parket á gólfi.Eldhús: Í alrými er eldhús með fallegri innréttingu frá Axis, góður Bosch bakaraofn, gufugleypir og keramik helluborði, uppþvottavél og ísskápur fylgja með, innfeld lýsing í lofti frá Lumex, parket á gólfi. Baðherbergi / þvottahús: Rúmgott baðherbergi með fallegri innréttingu, sturtu, upphengdu salerni, þvottavél og þurrkari fylgja með, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísalagt í hólf og gólf. Geymsla: Í sameign í kjallara er 8,4 fm. geymsla, málað gólf. Ath. stæði í bílageymslu fylgir ekki. Á lóðinni eru 41 bílastæði þ.a. þrjú sérmerkt fötluðum. Svalir: 8,3 fm. yfirbyggðar svalir sem hellulagðar eru með viðarflísum.Sameign: Einstaklega glæsileg og snyrtileg sameign með hljóðplötum í lofti til að dempa hljóð utan íbúðar. Rafmagnsopnanir í anddyrum, póstkassar og mynddyrasími. Teppa-, og flísalögð sameign. Lýsing frá Lumex í sameign. Í sameign er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.Annað: Öll gluggatjöld og vegg/loftljós munu fylgja íbúðinni.Innréttingar: Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá Axis. Húsið: Mikill metnaður einkennir alla hönnun og efnisval. Húsið er staðsteypt, klætt báruáli frá Áltak, þar sem arkitektahönnun fær að njóta sín til fulls. Innsteypt innfelld lýsing undir svölum. Ljósleiðaratenging komin inn í smáspennutöflu íbúðar. Góð lofthæð. Hiti undir steyptri stétt. 41 bílastæði utandyra, 35 stæði í bílageymsluhúsi. Bílageymsluhús í sérflokki og stórar og góðar geymslur. Sameign og lóð eru fullfrágengin.Umhverfið: Húsið er staðsett sunnan við fjallið Helgafell í Mosfellsbæ. Það stendur neðarlega í nýjasta hverfi bæjarins með stórbrotnu útsýni. Búið er að reisa glæsilegan leik-, og grunnskóla í hverfinu, Helgafellsskóla. Nálægð við náttúruna og Álafosskvosina, perlu Mosfellsbæjar. Stutt er í fallegar gönguleiðir og almenningssamgöngur, þar sem strætóstoppustöð er beint fyrir utan húsið. Nánari upplýsingar og sýningu á eigninni annast Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s. 8933276 eða með tölvupósti: . ----------------------------------------------------------Heimasíða Helgafells fasteignasöluFacebook síða Helgafells- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.