Viltu kynnir mjög vandaða og fallega 2ja herbergja íbúð á frábærum stað við Valshlíð 16 í nýja Hlíðarendahverfinu. Bílastæði í upphituðum bílakjallara og mjög góð geymsla með millilofti.
Eigendur skoða uppítöku á eign á höfuðborgarsvæðinu. Allt að 65 milljónum.
Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit ásamt öðrum sölugögnum fyrir eignina.
Eignin er skráð 91,9m2 og skiptist í 78m2 íbúð á 3. hæð, 13,9m2 geymslu með millilofti og stæði í lokuðum bílakjallara.
Aukin lofthæð 2.8 m. - Vandaðar JKE innréttingar með kvartz á borðum - Miele tæki - Ljósahönnun frá Lumex - Fallegt plankaparket á gólfum - Vandaðar gardínur frá Z-brautum fylgja.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er í íbúðina um sérinngang. Frá svalagangi er komið í forstofu/gang með innbyggðum rúmgóðum fataskáp.
Eldhús: Í opnu rými sem tengist við stofuna. Vönduð JKE innrétting með tækjavegg. Ofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Spanhelluborð og góður háfur yfir. Mikið skápa og skúffupláss. Í gólfi í eldhúsi er rafmagn og því hægt að bæta við eyjju.
Stofa/Borðstofa: Eru samliggjandi í opnu og björtu rými. Þaðan er gengið á svalir til suðausturs.
Svefnherbergi: Bjart og rúmgott hjónaherbergi með stórum innbyggðum fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. "Labb-inn" sturta. Innbyggt upphengt salerni og handklæðaofn. Vandaðar innréttingar með plássi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílastæði: Í kjallara fylgir sér bílastæði með þessari íbúð. Gert ráð fyrir rafbílahleðslu.
Geymsla: Í sameign í kjallara fylgir sér 13,9m2 geymslu með íbúðinni. Vegna mikillar lofhæðar er búið að koma fyrir millilofti með fulltri lofhæð og því er geymslan raunverulega með um 25m2 gólfpláss.
Frábær staðsetning rétt við Öskjuhlíð, Nauthólsvík, Landspítalann, Háskólana, Miðbæinn sem og aðra þjónustu og afþreyingu sem miðborgarsvæðið hefur uppá að bjóða
Nánari upplýsingar veitir Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 eða heidrekur@viltu.is eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / hvad@viltu.is
Nánari upplýsingar í síma 583-5000 eða hvad@viltu.is
Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr. m.vsk
Allt innifalið.
Kynntu þér málið á Viltu.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu


























| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|---|---|---|---|
| 2 | 91,90 m² | 91.600.000 kr. 29. maí 2026 | 55.900.000 kr. 14. apríl 2021 |
0226 ![]() | 2 | 78,50 m² | 79.900.000 kr. 13. apríl 2026 | 71.000.000 kr. 6. júní 2024 |
0227 | - | - | - | 49.900.000 kr. 8. apríl 2021 |
0228 ![]() | 5 | 217,80 m² | 159.000.000 kr. 19. maí 2026 | 99.900.000 kr. 10. ágúst 2021 |
0419 ![]() | 2 | 83,60 m² | 74.900.000 kr. 25. maí 2026 | 68.000.000 kr. 11. febrúar 2024 |
0326 ![]() | 3 | 185,50 m² | 129.900.000 kr. 28. nóvember 2025 | 115.500.000 kr. 28. janúar 2026 |
0224 ![]() | 2 | 107,60 m² | 66.900.000 kr. 25. febrúar 2021 | 66.900.000 kr. 26. mars 2021 |
0225 ![]() | 3 | 187,30 m² | 118.900.000 kr. 21. nóvember 2023 | - - |
0418 ![]() | 3 | 188,80 m² | 149.900.000 kr. 7. september 2024 | 145.000.000 kr. 10. október 2024 |
0420 ![]() | 5 | 237,30 m² | 149.500.000 kr. 28. september 2023 | 143.000.000 kr. 12. janúar 2024 |
| 3 | 105,50 m² | 84.900.000 kr. 17. ágúst 2022 | 88.100.000 kr. 14. nóvember 2022 |
| - | - | - | 50.900.000 kr. 6. maí 2021 |
| - | - | - | 68.900.000 kr. 16. desember 2020 |
| - | - | - | 104.900.000 kr. 12. október 2021 |