Gimli fasteignasala kynnir: Mjög rúmgóða 2ja herbergja íbúð á neðri hæð með sérinngangi. Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, eldhús, borðstofu, stofu, geymslu, baðherbergi og þvottahús þar inn af. Eignin er í nýju og vel staðsettu tveggja hæða fjölbýli í grónu hverfi. Áætlað er að íbúðin ve... Sýna meira
Gimli fasteignasala kynnir: Mjög rúmgóða 2ja herbergja íbúð á neðri hæð með sérinngangi. Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, eldhús, borðstofu, stofu, geymslu, baðherbergi og þvottahús þar inn af. Eignin er í nýju og vel staðsettu tveggja hæða fjölbýli í grónu hverfi. Áætlað er að íbúðin verði afhent fullfrágengin á byggingarstigi 7 án gólfefna þann 5. apríl 2022. Nánari upplýsingar veitir Lilja Hrafnberg, Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali, í síma 8206511, milli kl. 9:00 og 19:00 alla virka daga, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til NÁNARI LÝSING:Forstofa: Rúmgóð með skápum.Eldhús/Stofa/Borðstofa: Sérsmíðuð, vönduð eldhúsinnrétting þar sem lagt er áherslu á gott skipulag og nútímalega hönnun. Innbyggð uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð, spanhelluborð, Borðplata úr ljósum acryl stein með undirlímdum vaski. Útgengi á verönd. Svefnherbergi: Bjart og rúmgott rými, fataskápar. Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir, flísalögð stór sturta með glerskilrúmi. Sérsmíðuð, vönduð innrétting. Upphengt salerni, handklæðaofn. Þvottahús: Inn af baðherbergi, gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.Geymsla: Rúmgóð innan íbúðarSamkvæmt skilalýsingu:verður íbúðin tilbúin til lagningar gólfefna, fyrir utan baðherbergi og þvottarýmiallir fletir íbúðar sem ekki eru flísalagðir verða sandspartlaðir, grunnaðir og málaðir með hvítum litGimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því fljótlega 40 ára starfsafmæli. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Þar sem um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.