Byr fasteignasala kynnir í einkasölu ÚTGARÐ 6 ÍBÚÐ 203, á Egilsstöðum. Þriggja herbergja íbúð á annarri hæð með útsýni. ÍBÚÐ 203, ÖNNUR HÆÐ. Stærð íbúðar er 83,0 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu og borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi me... Sýna meira
Byr fasteignasala kynnir í einkasölu ÚTGARÐ 6 ÍBÚÐ 203, á Egilsstöðum. Þriggja herbergja íbúð á annarri hæð með útsýni. ÍBÚÐ 203, ÖNNUR HÆÐ. Stærð íbúðar er 83,0 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu og borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymsla. Í sameign er sérgeymsla, hjóla- og vagnageymsla og sorpgeymsla. EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING. Anddyri með fatahengi. Stofa og borðstofa eru saman í opnu rými. Útgengt er frá stofuhluta á rúmgóðar suðursvalir með útsýni meðal annars að Snæfelli. Eldhús með keramik helluborði og ofni, stálvaskur og blöndurnartæki, uppþvottavél og ísskápur fylgir.Hjónaherbergi með fjórföldum fataskáp. Barnaherbergi með fataskáp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, salerni, baðkar með föstu „loki“ sturta og handklæðaofn. Tengi er fyrir þvottavél er á baðherbergi. Geymsla er innan íbúðar, hillur á veggjum, rafmagnstafla. Gólfefni: Harðparket er á öllum rýmum eignarinnar nema baðherbergi. Flísar eru á anddyri og baðherbergi. Í sameign er stigahús, anddyri, hjóla- og vagnageymsla ásamt sérgeymslu. Húsið er steinsteypt fjöleignarhús á þremur hæðum, alls 16 eignarhlutar. Lóðin er sameiginleg. Lóð er frágengin, malbikuð bílastæði í sameign eru framan við húsið. Vel skipulögð íbúð á annarri hæð. Mikil nálægð við sundlaug, íþróttasvæði og Menntaskólann á Egilsstöðum. Stutt í alla helstu þjónstu, afþreyingu og útivist. Ýtið hér fyrir staðsetningu.ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - Um skoðunarskyldu:Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala