SUMARHÚS VIÐ APAVATN – GLÆSILEGT HEILSÁRSHÚS Á EIGNARLÓÐ
Valhöll fasteignasala og Snorri Snorrason kynna til sölu vandað og fallegt heilsárshús á einstökum stað við Apavatn.
Um er að ræða 91,2 fm timburhús ásamt 14 fm gestahúsi á 5.000 fm eignarlóð. Samtals er eignin skráð 105,2 fm.
Húsið stendur á afar fallegum útsýnisstað í lokuðu sumarhúsahverfi með rafmagnshliði. Stór verönd liggur meðfram þremur hliðum hússins, samtals um 170 fm, og tengir saman aðalhús og gestahús. Um 33 fm af veröndinni eru undir þaki sem skapar gott skjól og notalega útiaðstöðu. Heitur pottur er á veröndinni með skjólveggjum.
Húsið er byggt úr timbri á steyptum grunni með steyptri botnplötu. Efri hæðin er með birta stærð 19,7 fm og góða lofthæð en gólfflötur er um 26,5 fm. Þar er rúmgóð svefnaðstaða ásamt sjónvarps- eða leikherbergi. Geymslurými er undir súð.Um klukkutíma akstur er frá höfuðborginni. Smelltu hér til að sjá staðsetningu. Rafmagnshlið er á veginum. Til að opna, þarf að hringja þegar komið er að hliðinu í Snorra Snorrason lgf. 8952115Eignin skiptist í: - Forstofu og gang.
- Bjart og opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi
- Þrjú svefnherbergi
- Baðherbergi með gólfhita
- Geymslu / tæknirými
- Svefnrými og sjónvarps- eða leikherbergi á efri hæð
- 14 fm gestahús með salerni
- 4 fm geymsluskúr með rafmagni
Nánari lýsingStofa / alrými: Björt og rúmgóð stofa með aukinni lofthæð, fallegu útsýni og kamínu sem skapar notalegt andrúmsloft. Stofa, borðstofa og eldhús mynda opið og fjölskylduvænt alrými. Útgengt er úr stofu út á stóra verönd.
Eldhús: Viðarinnrétting, gaseldavél, ofn og vifta. Uppþvottavél og ísskápur fylgja með án ábyrgðar á ástandi.
Baðherbergi: Flísalagt með gólfhita, viðarinnréttingu, vegghengdu salerni og sturtuklefa.
Verönd: Stór verönd liggur meðfram húsinu og tengir saman aðalhús og gestahús. Um 33 fm eru undir þaki sem veitir gott skjól og skapar afar notalega útiaðstöðu. Heitur pottur er á veröndinni með skjólveggjum. Þakkantur, handrið og skjólveggir eru klædd með lituðu áli sem gefur snyrtilegt og viðhaldslétt yfirbragð.
Gólfefni: Parket er á gólfum í alrými og svefnherbergjum svo og á efri hæð en flísar á anddyri, gangi og baðherbergi.
Gestahús: Gestahúsið er stúdíóíbúð með salerni og er í dag nýtt sem vinnuaðstaða.
Geymsluhús: Samþykkt teikning liggur fyrir til að byggja 20 fm geymsluhúsi ásamt 6 fm verönd. Húsið er hugsað sem geymsla fyrir fjórhjól og önnur stærri tæki.
Annað:- Allmennt innbú fylgir með eftir samkomulagi en seljendur halda eftir persónulegum munum.
- Hitaveita í húsinu með lokuðu kerfi og varmaskiptir fyrir ofna og gólfhita.
- Heitur pottur með skjólveggjum
- Lokað sumarhúsasvæði með rafmagnshliði
- Félag lóðarhafa við Útey 1 – Nýja hverfið sér um viðhald svæðisins
- Ársgjald félags árið 2026 er kr. 15.000
- Innifalið í gjaldi er snjómokstur eftir þörfum á föstudögum og sunnudögum ásamt rafmagni á hliði
- Hitaveitufélag: Félag sumarhúsaeigenda Útey 1, árgjald kr. 100.000
- Fasteignagjöld árið 2026 eru kr. 263.113
Snorri Snorrason veitir nánari upplýsingar í síma 895-2115 eða á netfanginu snorri@valholl.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700 fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.