ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:Fallegt og skemmtilega hannað parhús í nýlegu hverfi á Selfossi.
Húsið er timbuhús, klætt að utan með litaðri báru, þak er einhalla klætt með bræddum tjörupappa.
Heildarstærð eignarinnar er 115,5m2 og skiptist hún skv teikningu í forstofu, 2 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi stofu og eldhús auk 21,8m2 sambyggðs bílskúrs.
Nánari lýsing:Forstofa er flísalögð og þaðan er innangengt í bílskúr.
Hjónaherbergi er parketlagt og þar er góður fataskápur.
Barnaherbergi er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt og þar er gólfsturta og góð innrétting.
Þvottahús er innaf baðherbergi, flísar eru á gólfi og þar er góð innrétting.
Stofa og eldhús eru í opnu parketlögðu rými, snyrtileg innrétting er í eldhúsi en í stofu er útgengt á sólpall á baklóð.
Bílskúr er fullmálaður.
Stór pallur með skjólveggjum og heitum potti er á baklóð, innkeyrsla er hellulögð.
Í heildina er um að ræða snyrtilegt og fullbúið parhús í góðu hverfi.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborgaarborgir@arborgir.is