Nýtt á skrá! Urriðaholtsstræti 32 Garðabæ - Falleg 4ra herb. íbúð á þriðju hæð með tveimur baðherbergjum og rúmgóðum svölum til suðurs.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar glæsilega 136,9 fermetra 4ra herbergja íbúð á þriðju hæð með tveimur baðherbergjum og svölum til suðurs við Urriðaholtsstræti 32 í Garðabæ. Fallegt lyftuhús byggt árið 2019. Íbúðin er björt og með gluggum til þriggja átta. Virkilega vel skipulögð íbúð með stóru alrými. Rúmgóð svefnherbergi og hjónaherbergi með baðherbergi inn af. Vandað eldhús með stórri eldhúseyju og steini á borðum. Myndavéladyrasími er í húsinu. Innfelld lýsing að hluta í loftum.
Um er að ræða afar fallega íbúð á eftirsóttum stað við Urriðaholtsstræti í Garðabæ. Útsýni frá íbúðinni er virkilega fallegt til norðausturs úr alrými. Lóðin er vel hirt með tyrfðum flötum og stéttum með snjóbræðslu.
Staðsetning er virkilega góð þar sem stutt er í verslanir, veitingastaði, kaffihús, leikskóla (Urriðaból I og Urriðaból II), grunnskóla (Urriðaholtsskóla) og glæsileg útivistarsvæði. Oddur golfvöllur, Urriðavatn og Heiðmörk í göngufjarlægð. Staðsetning í lokuðum rólegum botnlanga.
Nánari lýsing: Forstofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og góðum skápum.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu með stórri eldhúseyju með steini á borðum. Stál AEG bakaraofn og spansuðu helluborð. Innbyggður kæliskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél. Fallegur eyjuháfur, undirfelldur vaskur og lýsing undir efri skápum. Eldhús er opið við stofu og með útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til suðurs inn í bakgarð hússins.
Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi og gluggum til norðurs, austurs og suðurs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á svalir.
Baðherbergi I: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili, falleg innrétting við vask með steini á borðum. Upphengt innbyggt salerni og gluggi til norðurs.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, skápum á heilan vegg og glugga til suðurs. Baðherbergi II er inn af hjónaherbergi.
Baðherbergi II: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Falleg innrétting við vask með steini á borðum. Upphengt salerni og opnanlegur gluggi til suðurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs með útsýni að Esjunni og hlíðum Heiðmerkur.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs með útsýni að Esjunni og hlíðum Heiðmerkur.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og innréttingu/hækkun undir þvottavél/þurrkara. Vinnuborð og vaskur.
Sérgeymsla: Í kjallara sem er 7,1 fermetrar. Málað gólf og hillur.
Bílastæði: Er sérmerkt í lokuðum bílakjallara.
Í sameign er aðgengi að: Sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu sem er snyrtileg með máluðu gólfi. Stigagangur og sameign er mjög snyrtileg.
Um er að ræða frábæra staðsetningu í Urriðaholti í Garðabæ þar sem stutt er í fallegar göngu- og hjólaleiðir.
Allar nánari upplýsingar veita:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í 849-0672 / heimir@fastlind.is