Eignamiðlun kynnir:Virkilega falleg og vel skipulögð 97.7 fm 3 herbergja útsýnisíbúð í lyftuhúsi við Urriðaholtsstræti 14, Garðabæ. Íbúðin er björt staðsett á 2. hæð með glugga á þrjá vegu, geymslu með opnanlegum glugga og stæði í bílageymslu.* Bókaðu skoðun hjá: Herdísi Valb. í síma 694-6166, tölv... Sýna meira
Eignamiðlun kynnir:Virkilega falleg og vel skipulögð 97.7 fm 3 herbergja útsýnisíbúð í lyftuhúsi við Urriðaholtsstræti 14, Garðabæ. Íbúðin er björt staðsett á 2. hæð með glugga á þrjá vegu, geymslu með opnanlegum glugga og stæði í bílageymslu.* Bókaðu skoðun hjá: Herdísi Valb. í síma 694-6166, tölvupóstur Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 250-1411, nánar tiltekið eign merkt 02-01. Ibúðin er skráð 86,9 fm og sérgeymsla í sameign merkt 0108 er skráð 10,8 fm. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu merkt B0-09, birt heildarstærð 97.7 fm. Svalir eru til vesturs og eru skráðar 8,8 fm. Eignin skiptist í:Forstofu/hol, 2 svefnherbergi, 1 stofu, 1 eldhús, 1 borðstofu, 1 baðherbergi, 1 geymslu og stæði í bílageymslu.Helstu kostir íbúðar:* Útsýni* Endaíbúð með glugga á þrjá vegu* Tvö rúmgóð svefnherbergi* Góðar svalir* Geymsla með ofni, rafmagni og opnanlegum glugga* Stæði í bílageymslu- rafhleðsla til staðar Nánari lýsing eignarinnar:Aðal inngangur er að ofanverðu við húsið.Forstofa: Rúmgóð með hvítum fataskápum og harðparketi á gólfi.Baðherbergi: Með fallegum flísum, hvítri innréttingu, veggföstu salerni, walk- in sturtu og rými fyrir þvottavél og þurrkaraHerbergi I: Rúmgott og bjart með stórum hvítum fataskápum og harðparketi á gólfi.Herbergi II: Rúmgott með hvítum fataskápum og harðparketi á gólfi.Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu og björtu rými með harðparketi á gólfi.Eldhús: Hvít innrétting með rými fyrir innbyggða uppþvottavél og ísskáp. Innrétting með spanhelluborði, háfi og góðu skápa- og borðplássi skilur fallega á milli eldhús, stofu og borðstofu. Borðstofa/ Stofa: Eru með glugga á þrjá vegu og útgengi út á rúmgóðar svalir sem hægt er að láta loka.Geymsla: Rúmgóð með stórum opnanlegum glugga, ofni og rafmagni. Stæði í bílageymslu: Búið er að koma fyrir rafhleðslutæki fyrir rafbíla.Innréttingar eru frá HTH og eldhústæki frá AEG. Á jarðhæð er annar inngangur inn í húsið auk sameiginleg hjóla- og vagnageymslu.Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2024: 75.350.000 krEignin er staðsett á vinsælum stað í Urriðaholti í Garðabæ þar sem stutt er í alla þjónustu. Má þar nefna grunnskóla, leikskóla, knattspyrnuvelli og útivistarsvæðið í Heiðmörk er í göngufæri svo fátt eitt sé nefnt.Nánari upplýsingar veitir Herdís Valb. Hölludóttir löggiltur fasteignasali og lögfræðingur, í síma 6946166, tölvupóstur eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090***Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Heimasíða EignamiðlunarEignamiðlun á Facebook