LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir bjarta, fallega og mikið endurnýjaða 3.herbergja 83 m2 enda íbúð á efstu hæð í litlu fjölbýli við Uguhóla 6 . Íbúðin er á þriðju hæð í snyrtilegu húsi . Stórglæsilegt útsýni er af svölum til suðurs. Stutt í skóla, leikskóla og við húsið er stórt leiksvæði fyrir börn. Nánari lýsing eignar Forstofa með stórum hvítum fataskápum og flísum á gólfi. Inn af forstofu er stór skenkur með miklu skúffuplássi og stórum spegli fyrir ofan.
Stofa/borðstofa með harðparket á gólfi og útgengt út á rúmgóðar svalir svalir með fallegu útsýni til suðurs. Innfelld lýsing á vesturvegg .
Eldhúsið er fallegt og bjart með fallegri hvítri innréttingu með efri og neðri skápum með flísum á milli skápa, innfeld lýsing undir skápum, span helluborð, nýr bakaraofn með sjálfhreinsibúnaði og kjöthitamæli, innbyggður ísskápur með frysti og innbyggðri uppþvottavél, flísalagt gólf.
Hjónaherbergið er rúmgott með innfelldum hvítum fataskáp, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi með innbyggðum hvítum fataskáp, harðparket á gólfi.
Baðherbergið er fallegt með flísalögðu gólfi og hluta til á veggjum, hvít innrétting með vaski ofan á , spegill með lýsingu fyrir ofan, upphengt salerni.
Íbúðinni fylgir sérgeymsla með hillum í sameign ásamt stóru sameiginlegu þvottahúsi og þurrkherbergi, hver er með sínar vélar.
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is