***Tunguvegur 21, 108 Reykjavík***
Eignaland og Jens Magnús lgf. kynna í einkasölu Tunguveg 21, 108 Reykjavík. Virkilega fallegt tveggja hæða einbýlishús á þessum vinsæla og skjólgóða stað í Reykjavík. Eignin er skráð skv HMS 173,9 fm og þar af er bílskúr 36 fm. Húsið er 5-6 herbergja og hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina.
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
Nánari lýsing:Komið er inn í anddyri með skáp og flísum á gólfi. Þaðan er gengið inn í hol þar sem er opið inn í fallega stofu með parketi á gólfi og sjónvarpsstofu með parketi á gólfi. Eldhúsið er snyrtilegt með hvítri innréttingu og kork á gólfi. Úr eldhúsi er innangengt í þvottahús, sem er með útgengi út í garð. Baðherbergið á neðri hæðinni er með innréttingu, sturtuklefa, salerni og handklæðaofn. Rúmgóður og fallegur stigi er upp á efri hæðina. Þar eru þrjú svefnherbergi (voru fjögur en búið að sameina tvö í eitt).
Garðurinn á bak við húsið er mjög stór og einkar skjólgóður. Í garðinum eru tveir kofar sem fylgja og er annar 3x3 á stærð og hinn 2x2,9.
Búið er að gera töluvert við húsið á undanförnum árum.- Skipt hefur verið um skólp út í götu
- Gluggar á báðum hæðum 2021
- Járn á þaki og þakrenna 2021
- Húsið málað að utan 2024
Virkilega falleg eign á vinsælum stað sem vert er að koma að skoða.
108 Reykjavík er miðja höfuðborgarsvæðisins, þægilegar tengingar við stofnbrautir og göngu- og hjólaleiðir um allt.
Stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, grunnskóla og menntaskóla. Falleg fjölskyldueign á góðum stað.
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is ***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.