Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Fallegt og töluvert uppgert einbýli við Tungusíðu 13 á Akureyri - samtals 235,3 m² að stærð.Húsið er byggt á pöllum og skiptist með eftirfarandi hætti.
Miðpallur skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, stofu og þvottahús.
Efri pallur skiptist í gang, fjögur svefnherbergi og baðherbergi.
Neðri pallur skiptist í forstofu, gang, tvö herbergi, baðherbergi og bílskúr/geymslu.
Forstofur. Aðalinngangur er á austurhlið hússins og að honum er farið upp um nokkrar tröppur. Annar inngangur er húsið að norðanverðu. Flísar er á gólfum í báðum forstofum og ´efri forstofu er góðir spónlagðir hnotu fataskápar.
Eldhúsið er með flísum á gólfi fallegri hvítri háglans og spónlagðri hnotu innréttingu.
Stofa og borðstofa eru með flísum á gólfi og úr borðstofu er hurð út á lóð til vesturs.
Þvottahúsið er með flísum á gólfi, innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaska, handklæðaofni og útgangi í garð til vesturs að snúrum.
Svefnherbergin í húsinu eru 6 talsins, fjögur eru á efri palli og eru öll með harðparketi á gólfi og fataskápum. Tvö herbergi er á neðri palli og á þeim báðum er parket og í öðru þeirra eru fataskápar.
Baðherbergin eru tvö. Aðalbaðherbergið er á efri palli og er það flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum. Þar er bæði baðkar og sturta, ljós innrétting og gólfhiti sem stýrt er í gegnum handklæðaofn. Baðherbergi neðri hæðar er einnig flísalagt og þar er sturta og skápur undir vaska.
Bílskúr er skráður sem geymsla í dag en á honum er innkeyrsluhurð og gönguhurð. Gólf eru lökkuð og þar er ágætt skápapláss, heitt og kalt vatn og opnalegur gluggi til norðurs.
Garðurinn er mjög snyrtilegur og var tekinn í gegn af fagmönnum. Framan við húsið er hellulagt bílaplan með snjóbræðslu í og steypt stétt og tröppur upp að aðailinngangi. Norðan við hús er hellögð stétt og tröppur upp á baklóð. Á baklóðinni er rúmgóð hellulögð verönd sem og timburpallur sem nær suður fyrir húsið og að steyptum palli við austurhlið hússins. Garðurinn er gróðursæll og grasflöt er bæði sunnan og austan við húsið. Á lóðinni eru tveir geymsluskúrar staðsettir á hellulagðri verönd.
Annað- Eldhúsið og miðpallur var tekið í gegn árið 2011.
- Gólfhiti er á öllum miðpalli.
- Þrjár útihurðar voru endurnýjaðar árið 2011.
- Harðparket á svefnherbergjum og svefnherbergisgangi er síðan 2020
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Auðvelt að breyta neðri palli í útleigurými með sérinngangi.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.