Björt og falleg 3ja herbergja íbúð á 3.hæð, bílskúr með hleðslustöð og góðum suðursvölum á þessum eftirsótta stað í suðurhlíðum Kópavogs. Nýuppgert eldhús með innnbyggðum kæliskáp, uppþvottavél, örbylgjuofn og góðum bökunarofni frá Siemens fylgja íbúðinni. Nýlega uppgert þvottahús með vaski er innan... Sýna meira
Björt og falleg 3ja herbergja íbúð á 3.hæð, bílskúr með hleðslustöð og góðum suðursvölum á þessum eftirsótta stað í suðurhlíðum Kópavogs. Nýuppgert eldhús með innnbyggðum kæliskáp, uppþvottavél, örbylgjuofn og góðum bökunarofni frá Siemens fylgja íbúðinni. Nýlega uppgert þvottahús með vaski er innan íbúðar og nýlegt parket , nýr dyrasími er í íbúðinni. Gott aðgengi og stutt í alla þjónustu.Eignin er skrá skv. Þjóðskrá Íslands alls 76,9 fm auk 24.8 fm bílskúr. Eignin skiptist í, anddyri, tvö svefniherbergi, baðherbergi og þvottahús ásamt fallegu nýuppgerðu eldhúsi, stofu og stórumsuðursvölum. Íbúðinni fylgir sér geymsla í sameign auk bílskúr með hleðslustöð.Nánari lýsing.Eldhús með nýlegri innréttingu frá 2019, innbyggðum kæliskáp, örbylgjuofni, uppþvottavél ásamt góðum bakaraofni frá Siemenssem fylgja með íbúðinni, parket á gólfi.Stofan björt með útgengt á góðar suðursvalir, parket á gólfi.Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.Barnaherbergi með skápum og parketi á gólfi.Baðherbergi upphengd salerni, baðkar, handklæðaofn og flísar í hólf og gólf.Þvottahús nýuppgert með fallegri rennihurð, er innan íbúðarinnar með vaski og flísum á gólfi.Sérgeymsla geymslan er 5 fm og er ekki inni í skráðum fm. og er staðsett á jarðhæð í sameign.Bílskúr 24.8 fm með heitu og köldu vatni og hleðslustöð.Sameiginlegt þvottahús í sameign.Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.Eldhúsið var tekið í gegn árið 2019, nýjar innréttingar, lagnir settar fyrir uppþvottavél og tekin niður veggur til að opna eldhúsið.Trönuhjalli 1 eru 11 íbúðir. Trönuhjalli 1 tilheyrir heildarhúsinu Trönuhjalli 1-5Eigin er staðsett á vinsælum stað í suðhlíðum Kópavogs, þar sem er stutt í alla þjónustu. Góð eign fyrir fólk með börn, þar sem er stutt í skóla,leikskóla og alla íþróttaaðstöðu.Nánari upplýsingar veitir Inga Reynis Löggiltur fasteignasali, í síma 820-1903 eða á netfanginu Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.