BYR fasteignasala kynnir TRÖNUHJALLI 1 ÍBÚÐ 301, 200 Kópavogur í einkasölu. Tveggja herbergja íbúð á efstu hæð á eftirsóttum stað í suðurhlíðum Kópavogs, suðursvalir, útsýni.Stutt í alla almenna þjónustu s.s. leikskóla, grunnskóla og verslanir, stutt í útivist og gönguleiðir. Ýtið hér fyrir staðsetn... Sýna meira
BYR fasteignasala kynnir TRÖNUHJALLI 1 ÍBÚÐ 301, 200 Kópavogur í einkasölu. Tveggja herbergja íbúð á efstu hæð á eftirsóttum stað í suðurhlíðum Kópavogs, suðursvalir, útsýni.Stutt í alla almenna þjónustu s.s. leikskóla, grunnskóla og verslanir, stutt í útivist og gönguleiðir. Ýtið hér fyrir staðsetningu. **BÓKIÐ SÝNINGU MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA TÖLVUPÓST Á EÐA Í SÍMA 483-5800**Skipulag eignar: Forstofa, eldhús, stofa og borðstofa, svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign er sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla og þvottahús. Nánari lýsing: Anddyri með flísum á gólfi, þrefaldur fataskápur er við anddyri. Eldhús, með flísum á gólfi, flísar á milli skápa, nýlegt Elextroluc helluborð og vifta ásamt nýlegum vask. AEG ofn í vinnuhæð, borðkrókur. Stofa og borðstofa með parket á gólfi, útgengt út á suðursvalir frá stofu. Svefnherbergi er með sexföldum fataskáp, parket á gólfi .Baðherbergi flísar á gólfi og á vegg við baðkar. Salerni, nýleg vaskinnrétting og vaskur, speglaskápur, þvottaaðstaða er á baðherbergi, pláss fyrir tvær vélar.Allt gler íbúðar eru nýlegt fyrir utan gler í svefnherbergi. Nýtt gler fyrir minni glugga í svefnherbergi fylgir. Nýleg svalahurð og gluggi þar fyrir ofan. Nýtt dyrasímakerfi er í húsinu með myndavél.Gardínur frá Sólargluggatjöldum í stofu og svefnherbergi fylgja. Geymsla er á jarðhæð í sameign, málað gólf, gluggi.Vagna- og hjólageymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi er í sameign.Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni. Húsið er steinsteypt, þrjár hæðir ásamt jarðhæð og eru þrjár íbúðir á fyrstu, annarri og þriðju hæð, auk þess eru tvær íbúðri á jarðhæð hússins ásamt sameiginlegur þvotta- og þurrkherbergi, vagna - og hjólageymslu, sorpgeymslu. Malbikuð bílastæði í sameign eru við húsið. Hellulagt er að inngangi hússins. Lóð er gróin. Í Trönuhjalla 1 eru 11 íbúðir. Trönuhjalli 1 tilheyrir heildarhúsinu Trönuhjalli 1-5. Skráning eignarinnar hjá HMS:Stærð: Íbúð 56.0 m².Brunabótamat: 28.100.000kr.Fasteignamat: 41.750.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat ársins 2024 er kr. 47.050.000.- Byggingarár: 1990Byggingarefni: SteypaALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala - Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.Um skoðunarskyldu:Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala