Helgafell fasteignasala og Jón G. Sandholt kynna parhús að Tröllahrauni 53, samtals 164,5 fm að stærð, þar af 31 fm bílskúr. Eignin skilast á byggingarstigi 2, tilbúin að utan en ófrágengin að innan sem gefur kaupanda tækifæri til að fullklára eignina eftir eigin smekk. Áætluð afhending Haust 2026.Um er að ræða timburhús á
steyptum sökklum,
kraftsperrur og
límtré í þaki. Húsið verður klætt með
litaðri báruálklæðningu í lit 9005 (svört). Þak verður klætt
ólituðu aluzink með álrennum. Framan á þakkanti verður
slétt álklæðning og
bandsöguð timburklæðning máluð svört neðan í kanti. Gluggar og hurðir verða
timbur/ál í lit 9005 með tvöföldu gleri, frá
Byko eða sambærilegu. Lóð verður
grófjöfnuð.Fyrir nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali, í síma 777-2288 eða jon@helgafellfasteignasala.is.Skipulag samkvæmt teikninguSamkvæmt teikningu er eignin skipulögð með eftirfarandi hætti:Anddyri – 5,8 fmKomið er inn í anddyri með plássi fyrir fataskáp.Stofa / eldhús / alrými – 48,6 fmMjög rúmgott og opið alrými með góðu plássi fyrir stofu og borðstofu. Eldhús er staðsett í alrýminu með eyju og góðu vinnuplássi.Hjónaherbergi – 17,9 fmRúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi.Svefnherbergi I – 10,2 fm
Svefnherbergi II – 11,5 fm
Baðherbergi – 7,2 fm
Þvottahús – 4,3 fm
Bílskúr – 31 fmInnangengt er í bílskúr frá anddyri.Frágangur að utan- Báruálklæðning á veggjum í lit 9005
- Þak klætt ólituðu aluzink
- Álrennur
- Slétt álklæðning á þakkanti
- Bandsöguð timburklæðning máluð svört neðan í kanti
- Timbur/ál gluggar og hurðir í lit 9005
- Tvöfalt gler
Lóð grófjöfnuð- Mulningur í bílastæði
- Ruslaskýli á lóð
- Byggingarstig
Eignin skilast á
byggingarstigi 2, sem þýðir að húsið er fullfrágengið að utan en ófrágengið að innan sem gefur kaupanda tækifæri til að velja innréttingar, gólfefni og skipulag að eigin smekk.
Fyrir nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali, í síma 777-2288 eða jon@helgafellfasteignasala.is.----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.