*****EIGNIN ER SELD OG ÞVÍ FELLUR FYRIRHUGAÐ OPIÐ HÚS NIÐUR*****
Betri Stofan Fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali kynna:
Falleg 197,6 fm sérhæð í þríbýlishúsi ásamt bílskúr og rúmgóðri aukaíbúð á þessum eftirsótta og fallega stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð að innan sem utan ásamt því sem að upprunalegt skipulag hefur verið betrumbætt. Garðurinn er einstaklega fallegur og sameiginlegur, auk þess sem stutt er í leiksvæði á milli Tómasarhaga og Lynghaga. Skv. fasteignaskrá mælist hæðin 134,5 fm með geymslu og bílskúrinn til viðbótar 63,1 fm en hluti af honum er innréttaður sem aukaíbúð (ca. 45 fm).Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum sbr. eftirfarandi samantekt:2025: Baðherbergi í garðíbúð endurnýjað (innrétting, tæki, sturtuklefi).
2025: Eldhús uppfært: Ný eikar-borðplata, flísar, opnar hillur með LED-lýsingu og helluborð með gufugleypi.
2025: Rafmagnstafla í íbúð yfirfarin og endurnýjuð.
2025: Útitröppur steypuviðgerðar og suðurgluggar á hæð yfirfarnir.
2024: Skólplagnir endurnýjaðar að fullu frá bílskúrum.
2011-2012: Dren endurnýjað að framan, skipt um þakrennur og niðurföll, og frárennsli fóðrað.
2000: Rishæð byggð og þak endurnýjað.
Nánari lýsing:
MiðhæðGengið er upp tröppur að sérinngangi á miðhæð.
Anddyri: Rúmgott með terrazzo-flísum. Á hægri hönd er svefnherbergi með innfelldum fataskáp og beykiparketi.
Eldhús og borðstofa: Úr anddyri er komið inn í opið og bjart rými með terrazzo-flísum. Eldhúsið var endurnýjað 2025 með fallegum opnum hillum og vandaðri eikar-borðplötu.
Skáli: Framan við eldhúsið er bjartur skáli sem í dag er nýttur sem borðstofa/setstofa og tengir eldhúsið við aðra hluta hæðarinnar.
Stofa: Björt og falleg með frönskum gluggum sem vísa út í garð. Úr stofu er útgengt á suðursvalir með stiga niður í garðinn.
Svefnherbergi: Á hæðinni eru þrjú herbergi auk þess sem er við anddyri. Eitt þeirra er nýtt sem aðalsvefnherbergi (þar sem eldhús var áður), annað með innbyggðum skápum og það þriðja er lítið herbergi sem nýtist vel sem barnaherbergi eða fataherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með baðkari, sturtu og skápainnréttingu.
Garðíbúð og bílskúrBílskúrshúsið skiptist í geymslu/bílskúr og fullbúna aukaíbúð.
Aukaíbúð (Garðíbúð): Hér er um að ræða rúmgóða og bjarta tveggja herbergja íbúð (u.þ.b. 45-50 fm) með sérinngangi frá bakgarði. Íbúðin skiptist í stofu með eldhúskrók, baðherbergi með nýlegum sturtuklefa (2025) og afmarkað svefnrými. Einstaklega gott rými sem hentar vel til útleigu eða fyrir unglinginn.
Bílskúr: Um 15 fm hluti hússins nýtist sem bílskúr eða góð geymsla.
Sameign og staðsetningGeymsla og þvottahús: Í kjallara sameignar er stór sérgeymsla sem tilheyrir hæðinni. Þvottahúsið er sameiginlegt og mjög snyrtilegt, þar sem hver íbúð er með pláss fyrir eigin vélar.
Staðsetning: Þetta er afar falleg eign á einum besta stað í hjarta Vesturbæjar, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og fallegar gönguleiðir.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.