Eignamiðlun kynnir:
Tómasarhagi 13, 183.4 fm 6. herbergja neðri sérhæð í þessari eftirsóttu götu í hjarta Vesturbæjarins.Um er að ræða miðhæð í þríbýli með fallegu útsýni til suðurs, íbúðin er opin og vel skipulögð, eldhúsið opnast inní stofu og borðstofu. 4. svefnherbergi. Sér þvottahús í íbúð.
Þetta er mikið endurnýjuð eign teiknuð af Guðmundi Kr. Kristjánssyni arkitekt. Opin og vel skipulögð miðhæð. Gólfhiti er á allri hæðinni.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.Húsið hefur verið tölvert endurnýjað á síðustu árum.
2006 - 2007 – Íbúðin tekin í gegn, rafmagn endurnýjað og nýjir tenglar, gólfhiti lagður í öll gólf (Tengi), gegnheilt vandað parket lagt á alla íbúðina og flísar á baðherbergi, þvottahús og forstofu og gestasalerni.
Ný vönduð eldhúsinnrétting frá ALNO og ný tæki frá Siemens og vaskur og salerni og vaskar frá Ísleifi Jónssyni.
2008 – Gestasalerni endurnýjað með vönduðum tækjum, flísum og stórum speglum.
2009 – Nýtt skólp, dren og lagnir, og snjóbræðsla og ný ganstétt lögð að húsi (ekki í tröppur).
2010 – Handrið á öllum svölum hússins hækkuð í stíl húsins (sérsmíðað járn) og samkvæmt reglugerð.
2011 - Nýtt tvöfalt gler frá Samverk sett í alla glugga (íbúð og bílskúr) og skipt um tréverk utanhúss / gluggalista. Einnig ný gler í svalahandrið á öllum svölum.
2011 – Múrviðgerðir á húsi og húsið málað.
2017 – Urethan steypulími dælt í sprungur á útveggjum til austurs, meðal annars við plötuskil til að koma í veg fyrir leka.
2019 – Allir gluggakarmar á húsinu málaðir.
2020 – Útveggir hússins málaðir.
2021 – Urethan dælt í sprungur á vegg og í stétt (stigapalli) við inngang á 1. og 2. hæð til að koma í veg fyrir leka í geymslum í sameign í kajllara.
2021 – Aðalsvalir í íbúðinni málaðar og lagfærðar, pallaefni frá Byko lagt á svalirnar og steinn og járn málað.
2026 – Nýtt þak á hús (bárujárn, kantar og ventlar ) og nýjar þakrennur á allt húsið.
2026 – Nýr dúkur settur á bílskúr.
2026 – Securitas kerfi í íbúð yfirfarið og uppfært í snjallkerfi.
Nánari lýsing:Anddyri: Flísalagt anddyri og inn af anddyri er nýlega endurnýjuð snyrting.
Eldhús: Stórt, bjart og opið eldhús sem var endurnýjað 2006, steinn á borðum. Mikið skápapláss, vönduð tæki, parket á gólfi.
Borðstofa: Borðstofan er opin inn í eldhús og stofu og tengir rýmin skemmtilega saman. Parket á gólfi og stór gluggi til austurs með góðu útsýni.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa og er útgengt út á góðar suðursvalir með útsýni. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi er með skápum, parket á gólfi og útgengt út á svalir.
Barnaherbergi eru 3. parket er á gólfum og skápar.
Baðherbergi: Mikið endurnýjað baðherbergi með baðkari með sturtu, flísum á gólfi og hluta af vegg, innrétting, upphengt salerni,
Þvottahús er við hliðina á baðherbergi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Tvær sérgeymslur í sameign, hitarými og sameiginleg þvotta og þurrkaðstaða. Útgengi er út í garð í gegnum sameign.
Bílskúr: Rúmgóður og inngengi er úr garðinum, auðvelt að útbúa stúdío eða vinnuaðstöðu.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hallgeirsson, löggiltur fasteignasali, í síma 824-9093, tölvupóstur kjartan@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook