Fasteignasalan Hvammur 466-1600
Tjarnarlundur 7b - Snyrtileg og björt 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í góðu fjölbýlishúsi - Stærð 85,6 m², þar af er geymsla á jarðhæð 4,3 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sér geymslu á jarðhæð.
Forstofa er með flísum á gólfi og opnu fatahengi.
Eldhús er með flísum á gólfi, góðri innréttingu og flísum á milli skápa. Þar er einnig ísskápur og uppþvottavél sem geta fylgt með við sölu eignar.
Stofa og eldhús eru í opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar svalir sem snúa til vesturs.
Svefnherbergin eru tvö, bæði eru með parket á gólfi og góður fataskápur er í öðru þeirra.
Á
baðherbergi er nýleg innrétting undir vask, flísar á gólfi og í kringum baðkar, sem er með sturtutækjum. Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi, þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sér
geymsla, 4,3 m², er á jarðhæð. Þar eru hillur.
Annað:
- Húsið var málað að utan og múrviðgert sumarið 2021.
- Skipt hefur verið um útihurðar í sameign.
- Vel staðsett eign. Stutt er í skóla, leikskóla og KA-heimilið.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.