Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Tjarnarlundur 16e - Björt og snyrtileg 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi á Brekkunni - Stærð 82,8 m², þar af er geymsla 4,8 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús og búr, stofu, baðherbergi og tvö svefnherbergi auk sér geymslu á jarðhæð.
Forstofa er með vínylparketi á gólfi og opnu fatahengi.
Eldhús er með ljósri innréttingu, með flísum á milli skápa og stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp. Inn af eldhúsi er
búr/geymsla með hillum.
Stofan er rúmgóð með vínylparketi á gólfi. Þaðan er útgengt út á steyptar suður svalir.
Á
baðherbergi er dúkur á gólfi og hluta veggja, ljós innrétting með stæði fyrir þvottavél, wc og sturtuklefi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með vínylparketi á gólfum. Í öðru þeirra er stór innfelldur fataskápur en í hinu er einfaldur fataskápur.
Sér geymsla á jarðhæð er skráð 4,8 m² að stærð.
Annað- Vínylparket var sett á gólf fyrir um 5 árum síðan.
- Mynddyrasími.
- Húsið var málað að utan 2021.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Stutt er í leik- og grunnskóla sem og KA svæðið.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.