Pálsson Fasteignasala kynnir:
Tjarnargata 10B – íbúð
301, 101 Reykjavík.
Fallega
endurnýjuð og einstaklega sjarmerandi
4ra herbergja íbúð á 3. hæð við Tjarnargötu í hjarta Reykjavíkur. Eignin var endurnýjuð árið 2024 með áherslu á gæði, flæði og samræmda heildarhönnun, þar sem eldhús, gangur og borðstofa voru opnuð saman og úr varð björt og glæsileg borgaríbúð með fallegum klassískum smáatriðum og vönduðu efnisvali.
Glæsileg eign - Sjón er sögu ríkari!S
kráð stærð 109,1 fmHelstu atriði- Endurnýjuð árið 2024 og hönnuð af landsþekktum innanhússarkitekt
- Sérsmíðað eldhús frá Svanverk með Patagonia Quartzite borðplötu og SMEG heimilistækjum.
- Chevron-lagt vinylparket, loftlistar og rósettur sem skapa hlýlegt og klassískt yfirbragð.
- Baðherbergið er eftir til endurnýjunar og gefur nýjum eiganda tækifæri til að setja sinn eigin svip á eignina.
Nánari upplýsingar veita:Ómar Hjaltason astmf. S:7789090 eða omar@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurNánari lýsingVið
Tjarnargötu 10B er að finna þessa fallegu og vel heppnuðu
4ra herbergja íbúð á 3. hæð í reisulegu húsi frá
1945. Eignin var endurnýjuð árið 2024 með afar smekklegum hætti þar sem lögð var sérstök áhersla á gæði, samræmda heild og betra flæði innan íbúðarinnar. Við breytingarnar var skipulag rýmisins endurhugsað og eldhús, gangur og borðstofa opnuð saman, sem skapar meiri birtu, betri tengingu milli rýma og léttara yfirbragð á heimilinu. Milli stofu og borðstofu eru rennihurðir sem gefa möguleika á að loka af rýmin þegar þess er óskað, án þess að taka frá eigninni opna og glæsilega heildarmynd.
Eldhúsið er sérsmíðað frá
Svanverk og er sannkallaður miðpunktur eignarinnar. Þar nýtur sín einstaklega falleg
Patagonia Quartzite borðplata með innfelldum vaski og vönduðu baki við vasksvæði, ásamt heimilistækjum frá
SMEG Italia og blöndunartækjum frá
Axor Montreux. Eyjan er klædd burstuðu stáli sem gefur rýminu fágað og nútímalegt yfirbragð og fallegt
Long John ljós frá
Rubn setur sterkan svip á rýmið. Grunnar hillur með kampavínslituðum spegli í baki og lóðréttri LED-lýsingu undirstrika síðan þann vandaða og stílhreina frágang sem einkennir eignina.
Í allri íbúðinni er nýtt
chevron-lagt vinylparket sem gefur heimilinu hlýlegt og klassískt yfirbragð. Loft eru skreytt fallegum listum og
rósettum og á gangi setja
Arte veggfóður og listar frá
Orac Decor sérstaklega glæsilegan svip á rýmið. Þykkur stálrammi skilur eldhús frá gangi og við breytingar á skipulagi var burðarvirki styrkt með stálbitum í samráði við verkfræðing. Öll
lýsing í íbúðinni hefur verið endurnýjuð, ásamt hluta raflagna,
dimmerar eru á öllum ljósum og rofar og innstungur frá
Thomas Hoof í Þýskalandi undirstrika vandaðan frágang.
Hurðir og gluggar hafa verið yfirfarnir og málaðir vandlega og hurðarhúnar frá
Beslag Design í Danmörku falla vel að heildarútliti eignarinnar. Í
stofu og borðstofu eru
Roman blinds gardínur en myrkvunargluggatjöld í svefnherbergjum.
Baðherbergið er eina rýmið sem eftir er að endurnýja, sem gefur nýjum eiganda kærkomið tækifæri til að útfæra það að eigin smekk og þörfum. Mögulegt er að ganga inn á baðherbergi bæði frá svefnherbergi og af gangi, sem eykur notagildi rýmisins. Hér er því um að ræða afar smekklega og vel endurnýjaða
borgaríbúð þar sem klassískur sjarmi og nútímalegur frágangur fara einstaklega vel saman.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.