Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Tjarnarbraut 17 Bíldudal - Vel staðsett uppgert einbýlishús á þremur hæðum með sérstæðum bílskúr við Tjarnarbraut 17, 465 Bíldudal.
Húsið er skráð 157 m² að stærð og bílskúr 60 m², samtals 207 m² að stærð.
Eignin var gerð upp og endurnýjuð að mestu á árunum 2012-2021.
Á jarðhæð hússins er sérinngangur, forstofa, opið rými/stofa, salerni/þvottahús og svefnherbergi, möguleiki á að breyta jarðhæð í séríbúð til útleigu til dæmis. Á aðalhæð er sérinngangur, forstofa, eldhús, baðherbergi, stofa/borðstofa og svefnherbergi.
Rishæð er svo eitt stórt rými sem mætti skipta niður í herbergi.
Húsið er timburhús á steyptum grunni (jarðhæð).Nánari lýsing:Jarðhæð, sérinngangur að framanverðu, komið inn í forstofu með teppi. Lítill skápur/fatahengi á gangi.
Opið rými með plastparketi á gólfi, mögulega væri hægt að breyta rýminu í opið eldhús og stofu. Stigi þar upp á 1. hæð.
Svefnherbergi með plastparketi gólfi.
Þvottahús og salerni með lítilli innréttingu, dúkur á gólfi, vatnshitakútur þar.
Hæðin er skráð 53,9 m² að stærð.
Miðhæð:Tréstigi upp á 1. hæð, þar er sérinngangur, einnig er þar skjólgóð verönd sunnan við húsið með ágætu útsýni.
Forstofa með flísum á gólfi og hita í gólfi, fataherbergi innaf forstofu.
Stór og björt stofa og borðstofa með gegnheilu parketi á gólfi, stigi þar niður á jarðhæð.
Svefnherbergi inn af stofu, stór fataskápur þar.
Endurnýjað eldhús með nýlegri hvítri innréttingu, helluborð og ofn, uppþvottavél.
Baðherbergi með hvítri innréttingu, flísar á gólfi, hiti í gólfi, hvít innrétting með góðu skápaplássi og sturtuklefi.
Hæðín er skráð 67,7 m² að stærð.
Rishæð:Stigi upp á rishæð, hæðin er eitt opið rými með gegnheilum fjölum á gólfi. Loft og veggir panilklætt.
Mögulegt að skipta rýminu niður í fleiri herbergi ef þörf er á því.
Lítið risloft yfir hæðinni getur nýst sem geymsla.
Hæðin er skráð 35,4 m² að stærð.
Bílskúr er skráður 50 m² að stærð, byggður úr timbri 1992 skv. HMS, skúrinn er með tvær stórar bílskúrshurðir úr timbri og eina inngönguhurð, einangraður að mestu að innanverðu. Rafmagn er í skúrnum og varmadæla til upphitunar.
Malarborið plan fyrir framan hús og við bílskúr. Gróinn garður með trjám.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.