NÝTT Í SÖLU - OPIÐ HÚS.
ÞYKKVIBÆR 4. 110-REYKJAVÍK. MJÖG FALLEGT, MIKIÐ ENDURNÝJAÐ EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ Á FRÁBÆRUM RÓLEGUM STAÐ Í ÁRBÆNUM. Sjá myndband af eigninni.Opið hús þriðjudaginn 9.júní 2026, kl. 17.00 - 18,00 Ingólfur Gissurarson lg.fs. sýnir S:896-5222 netfang: ingolfur@valholl.is
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari, síðan 1989, sími:896-5222, kynna: Einstaklega fallegt, velskipulagt og mikið endurnýjað alls 176,8 fm einbýlishús á einni hæð, Íbúð skráð 135,6 fm og bílskúr 41,2 fm sem hefur verið nýttur sem íbúðarherbergi og skrifstofuaðstaða. Auðvelt að útbúa þar góða íbúð. Þar að auki er ca 20 fm kaldur geymsluskúr aftan við bílskúr á baklóðinni. Á teikningu eru 4 svefnherbergi inni í húsinu en tvö þeirra eru sameinuð í eitt stórt (auðvelt að breyta). Nýlegt eldhús, þak, gluggar og fl. Fallegur arin í stofu. Rólegur og friðsæll staður í lokaðri botnlangagötu á frábærum stað í Árbænum. Stutt í skóla, Sundlaug, verslanir, þjónustu, og gönguleiðir um Elliðár og Víðidalinn.SKIPULAG: Forstofa með fatahengi.
Gestasnyrting innaf með glugga og upphengdu salerni.
Hol. Rúmgott
eldhús með borðkrók, nýleg hvítlökkuð fulninga innrétting með granít borðplötum, stálháfur, innbyggður ísskápur m.frysti og uppþvottavél. Rúmgott
þvottaherbergi innaf eldhúsinu með rennihurð á milli. Þar er góð innrétting, skápar og sturta. Hurð úr þvottaherberginu út í bakgarðinn. Rúmgóð
stofa með fallegum arin.
Svefnálma. Þar eru
3 svefnherbergi í dag, þar sem tvö hafa verið sameinuð í eitt stórt. Skápar í hjónaherberginu.
Baðherbergi sem var endurnýjað fyrir ca 20 árum, flísalagt með baðkari, innréttingu og glugga. Útgengt úr holi / stofu útá baklóðina í suðvestur. Þar er timburverönd og hellulagðar stéttar. Rúmgóð 816 fm lóð í góðri rækt.
Gólfefni: Nýlegt parket á stofu. Parket á svefnherbergjum. Flísar á forstofu, holi, eldhúsi, þvottaherbergi, gestasnyrtingu og baðherbergi. Gólfhiti er undir flísum.
Bílskúr er nýttur í dag sem geymsla og/eða skrifstofa með hurð+glugga fronti í stað bílskúrshurðar, en auðvelt að breyta aftur í hefðbundinn bílskúr eða að útbúa íbúð því gott
svefnherbergi er innaf bílskúrnum (teikning til af íbúð). Útgengt úr bílskúrnum á baklóðina þar sem er hellulögð stétt og síðan er köld geymsla aftan við bílskúrinn ca 20 fm, með hellulögðu gólfi og hitalögn þar undir. Rafhleðslustöð fyrir bíla á vegg við bílskúr.
ANNAÐ: Eftirfarandi upplýsingar eru frá seljendum= Skipt var um þak á íbúðarhúsinu fyrir ca 4 árum, sett 5t einangrun og þakdúkur. Þakkantur líka þá allan hringin. Húsið var málað að utan fyrir ca 2 árum og gluggar eru nýlegir. Einnig útihurðar nýlegar (gegnheilar fulninga hurðir). Nánari upplýsingar um viðhald og endurnýjanir er að sjá í upplýsingablaði seljenda um ástand eignar hjá sölumanni.
-------- GLÆSILEGT VELSKIPULAGT EINBÝLISHÚS Á FRÁBÆRUM EFTIRSÓTTUM STAÐ. -------
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari S: 896-5222 ingolfur@valholl.is Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 37 ára samfelldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, hringið þegar ykkur hentar í síma 896-5222.
VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SKV, GREININGU CREDITINFO 2015 til 2022, EÐA 8 ÁR SAMFLEYTT, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM OG FYRIRMYNDARFYRIRTÆKI Í REKSTRI SKV, GREININGU VIÐSKIPTABLAÐSINS OG KELDUNAR 2017-2022.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.