Kaupsýslan kynnir: Fallega og töluvert endurnýjaða sex herbergja 159,9 m2 íbúð á tveimur hæðum að Þverholt 9 í Mosfellsbæ. Fallegt útsýni. Smelltu hér til að sækja söluyfirlit straxAðalhæð skiptist í anddyri, gang, eldhús,stofu, borðstofu, þvottahús og tvö svefnherbergi. Geymsla fyrir framan íbúð. R... Sýna meira
Kaupsýslan kynnir: Fallega og töluvert endurnýjaða sex herbergja 159,9 m2 íbúð á tveimur hæðum að Þverholt 9 í Mosfellsbæ. Fallegt útsýni. Smelltu hér til að sækja söluyfirlit straxAðalhæð skiptist í anddyri, gang, eldhús,stofu, borðstofu, þvottahús og tvö svefnherbergi. Geymsla fyrir framan íbúð. Rishæð skiptist í þrjú svefnherbergi og rúmgott hol. Birt stærð íbúðar er samtals 159,9 m2 skv. skráningu Þjóðskrá Íslands. Geymsla er 1,9 m2. Gólfefni eru parket, og flísar, nema í þvottahúsi sem er með máluðu gólfi og stigi sem er teppalagður. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð á síðastliðunum árum, skipt var um gólfefni á neðri hæð og var eldhús og baðherbergi endurnýjað. Komið er inn á flísalagðan gang með góðum fataskáp, þar á hægri hönd eru tvö barnaherbergi með parketi á gólfum, eldhús er með fallegri eikar innréttingu með nægu skáparými, spanhelluborði, gufugleypi og bakarofn í vinnuhæð. Flísar eru á milli skápa. Í eldhúsi er rými fyrir tvöfaldan ísskáp og borðkrókur. Fallegt útsýni er úr eldhúsi yfir Esjuna. Innaf eldhúsi er snyrtilegt þvottahús með góðri innréttingu. Baðherbergi hefur verið endurnýjað á smekklegan máta, það er flíslagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, sturtu með glerskilrúmi og fallegri eikar baðinnréttingu. Stofa og borðstofa eru rúmgóðar með mikilli lofthæð yfir borðstofuhluta, útgengt er á suðursvalir úr stofu. Á efri hæð er rúmgott hol sem gæti nýst sem sjónvarpshol. Risloft er panilklætt með halogen lýsingu, einnig inní herbergjum. Þrjú svefnherbergi eru á hæðinni, þau eru að hluta til undir súð og því er gólflötur meiri en skráðir fermetrar. Barnaherbergin tvö eru með þakglugga og er í öðru herberginu gott geymslupláss undir súð og í hinu herberginu er fataskápaeining án hurða. Hjónaherbergi er rúmgott með fallegum þríhyrndum glugga sem setur skemmtilegan svip. Um er að ræða fallega og töluvert endurnýjaða sex herbergja íbúð við Þverholt 9 sem er afar miðsvæðis í Mosfellsbæ, stutt í alla helstu þjónustu, leikskóla, skóla, fjölbrautaskóla, verslanir, bakarí ofl. Allar nánari upplýsingar veita:Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali, s: 823 2600 Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 823 2800 Kaupsýslan fasteignasala - Nóatúni 17 - 105 Reykjavík - 2. hæð - -571-1800-------------------------------------------------------------------------------------- Fletta í fasteignalista