** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, aðstoðarmaður fasteignasala - eða 690-8040 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og rúmgóð 65,7 m2, 2ja herbergja íbúð á 3.hæð, í nýlegu lyftuhúsi við Þverho... Sýna meira
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, aðstoðarmaður fasteignasala - eða 690-8040 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og rúmgóð 65,7 m2, 2ja herbergja íbúð á 3.hæð, í nýlegu lyftuhúsi við Þverholt 31 í Mosfellsbæ. Svalir í suðvesturátt. Fallegt útsýni. Húsið er mjög vel staðsett rétt við miðbæ Mosfellsbæjar og því stutt í alla þjónustu. Eignin er skráð 65,7 m2 og skiptist í eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi/þvottahús og geymslu. Fallegar innréttingar og gólfefni. Innbyggður ísskápur/frystiskápur og uppþvottavél. Íbúðin er með HTH innréttingum, eldhústækjum frá AEG, eikar harðparketi á gólfum frá Birgissyni ehf. en baðherbergisgólf eru flísalögð, hreinlætis- og blöndunartæki eru frá Tengi ehf. Dyrasími með myndavél.Nánari lýsing:Forstofa er með fataskáp og harðparketi á gólfi. Stofa er í björtu opnu rými með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðurátt.Eldhús er með fallegri innrétting frá HTH. Í innréttingu er helluborð, vifta og blástursofn. Innbyggður ísskápur/frystiskápur og uppþvottavél. Skúffur eru í neðri hluta innréttingar með ljúflokun og skápar í efri hluta innréttingar. Baðherbergi/þvottaherbergi er með flísalögðu gólfi, fallegri baðinnréttingu, innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara sem eru lyft upp frá gólfi og skúffur undir þvott, vegghengdu salerni, sturtu og handklæðaofni. Sturtan er flísalögð og með sturtuskilrúmi.Svefnherbergi er með fataskápum og harðparketi á gólfi.Sérgeymsla er innan íbúðarÍbúðinni fylgir hlutdeild í sameiginlegri vagna- og hjólageymslu. Innfelld lýsing er að hluta til inni í íbúðum. Lýsing er hönnuð og teiknuð af Lumex. Húsið er hannað af Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar. Byggingaraðili er Byggingafélagið Bakki ehf. Húsið er einangrað og klætt að utan með fyrsta flokks álklæðningu frá Áltak sem er viðhaldslítil. Lóð er með gróðri og leiktækjum og er snjóbræðsla í öllum helstu gönguleiðum. Skv. samþykktum bygginganefndateikningum, þann 02.06.2019, þá er búið að fá samþykki fyrir svalalokunum á öllum íbúðum í húsinu. Íbúðin eru afhent án svalalokana og eru kaupendur hvattir til að kynna sér skilmála svala og verandalokana. Sorpgámar eru djúpgámar sem eru staðsettir miðsvæðis á lóðinni. Verð kr. 54.900.000Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.