Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Þrastarhóla.
Virkilega falleg, einstaklega rúmgóð, vel um gengin, fimm herbergja íbúð á þriðju hæð í snyrtilegu fjölbýli á þessum eftirsótta stað í Breiðholti.
Eigninni fylgir rúmgóður bílskúr.Komið er inn í stórt hol sem tengir alla hluta íbúðarinnar. Inn af holinu er gestasalerni með upphengdu salerni.
Eldhúsið er rúmgott með fallegri innréttingu og góðu skápaplássi. Innst í eldhúsinu er borðkrókur. Inn af eldhúsinu er búr.
Stofan er einstaklega rúmgóð og björt með stórum gluggum. Úr stofunni er útgengt út á stórar svalir. frábært útsýni er af svölunum.
Sér þvottahús er í íbúðinni.
Baðherbergið sem er flísalagt í hólf og gólf hefur verið töluvert endurnýjað. Þar er baðkar, ný walk in sturta, upphengt salerni og falleg innrétting.
Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni, skápar eru í hjónaherbergi, einnig eru góðir skápar á svefnherbergisgangi. Úr hjónaherberginu er útgengt út á svalir með frábæru útsýni.
Sér geymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni, sem og sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Bílskúrinn er virkilega snyrtilegur og rúmgóður.
Gólfefni íbúðarinnar eru flísar og parket.
Þetta er falleg, rúmgóð, vel um gengin eign á góðum stað í Breiðholti, þar sem stutt er í alla þjónustu svo sem, skóla, leikskóla, íþróttir og verslun.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Fagleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
josep@fastgraf.is