Þórsstígur, sumarhús í landi Ásgarðs. Hitaveita og glæsilegt útsýni.Fasteignaland kynnir: Sumarhús við Þórsstígu 29 í landi Ásgarðs. Um er ræða 65,7 fm sumarhús auk 25,1 fm gestahús eða samtals 90,8 fm samkvæmt Húsnæðis-og mannvirkjastofnun. Aðal húsið var byggt árið 2000 en gestahúsið var byggt árið 2014. Í báðum húsunum er hitaveita, lokað ofnakerfi. Húsin liggja á dregurum, steyptum veggjum. Lóðin er 9000 fm kjarrivaxin eignarlóð með glæsilegu útsýni yfir sveitina og Sogið. Þetta svæði er lokað með hliði (rafmagnshliði). Húsin eru klætt með bandsöguðu efni.
Lýsing á eign: Forstofa með parketi á gólfi. Tvö herbergi með parketi á gólfi, eitt með góðu skápaplássi. Baðherbergi er með dúk á gólfi, viðarinnréttingu, sturtuklefa og útgengi út á sólpall. Stofan og eldhúsið eru í sama rými með parketi á gólfi og góðri lofthæð. Útgengi út á suður sólpall. Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu og vönduðum tækjum.
Milliloft: Með parketi á gólfi og opnanlegu fagi. Auk þess er lítil geymsla undir súð.
Geymsla 1: Gengið inn af sólpalli við inngang hússins. Þessi geymsla er einangruð og plöstuð.
Gestahús: Skráð 25,1 fm og er tvískipt. Annar hlutinn alrými með parketi á gólfi, lítill eldhúskrókur, hvít innrétting með ísskáp. Inn af herberginu er baðherbergi með parketi á gólfi, sturtu og útgengi út á suður sólpall. Hinn hlutinn er geymsla sem nýttur er fyrir grill, þvottavél og annan búnað.
Geymsla 2: Ca 3 fm bjálkahús
Stór sólpallur ca. 140 fm með girðingu og skjólgirðingu.
Lóðin er 9.000 fm eignarlóð kjarri vaxin
Góð aðkoma og næg bílastæði.
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 40.000 á ári.
Upplýsingar gefa:
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 898-0508 netfang: arni@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.isSkoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 .
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.