LIND fasteignasala og Auður Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir 83.6 m2 íbúð á 3. hæð ásamt innbyggðum 26,1 m2 bílskúr. Sérinngangur af svalagangi. Rúmgóðar svalir til suð-vesturs. Þvottahús innan íbúðar. Stutt í skóla, alla þjónustu, skóla og útivistarsvæði s.s. golfvöllinn. Nánari lýsingForstofa, fataskápur, flísar á gólfi.
Þvottaherbergi er innaf forstofu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, hillur, flísar á gólfi, opnanlegur gluggi.
Eldhúsið er opið inn í stofu, innrétting með efri og neðri skápum, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottvél í innréttingu, keramik helluborð með viftu yfir, flísar á gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð með flísalögðu gólfi, útgengt út á stórar suðvestur svalir.
Hjónaherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergið er allt flísalagt, innrétting með efri og neðri skáp, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Bílskúrinn er innbyggður á jarðhæð, heitt og kalt vatn, búið að setja 3 fasa rafmagn fyrir rafbílahleðslu.
Geymsla er innaf bílskúr með hillum.
Stutt í skóla, alla þjónustu, skóla og útivistarsvæði s.s. golfvöllinn. Allar upplýsingar um eignina veitir Auður Magnúsdóttir fasteignasali í síma 848-2666 eða audur@fastlind.is