Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Þorkelsgerði 2, Selvogi, 816 Ölfus / Sveitarfélagið Ölfus:Um er að ræða rúmgott, bjart og vel viðhaldið 4ra herbergja einbýlishús / sumarbústað á góðum stað í Selvogi, skammt frá Strandarkirkju. Húsið er byggt 1950 og birt stærð eignar samkvæmt HMS er 91 fm. Eignin stendur á fallegri 12.460 fm eignarlóð sem liggur að fjöru.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXHúsið skiptist í forstofu, stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi / þvottaherbergi, gang og geymsluloft.
Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa, parket á gólfi. Einstaklega fallegt útsýni út yfir sjóinn í suður.
Eldhús: Með fallegri upprunalegri innréttingu, eldavél, ísskápur og uppþvottavél sem fylgja með, hillur, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott, parket á gólfi.
Baðherbergi / þvottaherbergi: Rúmgott, hvít innrétting, sturta, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi og í sturtu.
Gangur: Parket á gólfi.
Geymsluloft: Geymsluloft er yfir húsinu og fellistigi í gang upp á loftið.
Lóð: Um er að ræða 12.460 fm eignarlóð. Lóðin er grasi gróinn og liggur að sjó.
Staðsetning: Smellið hér. Að sögn eigenda er búið að lagfæra og endurnýja eftirfarandi: * 2024 Húsið málað að innan.
* 2023 Sá hluti glers endunýjað sem var ekki endurnýjað 2000.
* 2022 Húsið málað að utan (járnklæðning, þak og gluggar).
* 2022 Hitakútur endurnýjaður.
* 2022 Rafmagnsofnar endurnýjaðir.
* 2011 Húsið var einangrað og klætt að utan með bárujárni.
* 2005-2006 Allt var hreinsað inn úr húsinu og skipulagi breytt (nema eldhúsinnrétting og gluggar). Nýjar vatns-, frárennslis- og raflagnir voru settar inn og frárennslið tengt við sameiginlega 2000 lítra þró með Torfabæ. Nýjum neysluvatnskút komið fyrir á lofti.
* 2005-2006 Gólf flotað og gólfefni endurnýjuð (parket og flísar).
* 2000 Skipt um hluta af gluggum/gleri og opnanlegum fögum.
Góð eign sem hægt er að búa í að staðaldri (má vera með skráð lögheimili) eða nota sem sumarhús eða til útleigu fyrir ferðamenn. Frábær staðsetning við sjóinn og friðsæla náttúru skammt frá Strandarkirkju.
Selvogur er lítil sveit yst á nesinu austan Herdísarvíkur og er mikil náttúruperla og býður upp á margvíslega möguleika fyrir ferðamenn. Stutt er í Selvogsvita og fallega fjöruna í Selvogi. Steinsnar frá Selvogi er Hlíðarvatn í Selvogi, einstaklega fallegt og frjósamt bleikjuvatn.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala, í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is. ----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.