Gimli fasteignasala kynnir: Þórðarsveigur 16, 113 Reykjavík. Rúmgóð og falleg 3ja herbergja, alls 85,4 fm íbúð á annarri hæð ásamt stæði í bílageymslu, sérinngangur af svölum, sér þvottahús innan íbúðar. Gott hús og vel staðsett í Grafarholtinu. Íbúð 77,8 fm, geymsla 7,6 fm. Sameiginleg lóð með lei... Sýna meira
Gimli fasteignasala kynnir: Þórðarsveigur 16, 113 Reykjavík. Rúmgóð og falleg 3ja herbergja, alls 85,4 fm íbúð á annarri hæð ásamt stæði í bílageymslu, sérinngangur af svölum, sér þvottahús innan íbúðar. Gott hús og vel staðsett í Grafarholtinu. Íbúð 77,8 fm, geymsla 7,6 fm. Sameiginleg lóð með leiktækjum.Eignin Þórðarsveigur 16 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 226-4939, birt stærð 85,4 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-02, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Allar nánari upplýsingar veitir Halla Unnur Helgadóttir í síma 659-4044, eða og/eða Elín Rósa Guðlaugsdóttir í síma 773-7126, eða NÁNARI LÝSING:Forstofa: með fataskáp, flísar á gólfi.Alrými: samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu.Stofa/borðstofa: stór og björt með útg. á rúmgóðar suðursvalir.Eldhús: með ljósri innréttingu, spanhelluborð með viftu yfir, nýr bakarofn undir helluborði, tengi fyrir uppþvottavél og gert ráð fyrir háum ísskáp í innréttingu. Gluggi.Baðherbergið: með nýlegri innréttingu, vegghengdu salerni, baðkari með sturtu, nýl. handklæðaskápur, handklæðaofn. Flísar á gólfi og veggjum, opnanlegur gluggi.Aðalsvefnherbergi: með tvöföldum fataskáp.Svefnherbergi #2: með fataskáp. Þvottahús: með flísalögðu gólfi, borðplata og efri skápar. Handklæðaofn, þvottasnúrur fylgja.Sér geymsla er í kjallara með hillum. Í kjallara er einnig rúmgóð hjóla-/vagnageymsla.Bílastæði: sérmerkt í lokuðu bílageymsluhúsi.Allir skápar, innrétting í eldhúsi og hurðir eru samstæð, með ljósri viðaráferð. Gólf, nema annað sé tekið fram, eru með ljósu parketi.Helstu framkvæmdir síðustu ár. 2019; húsið sílanborið, gluggar og hurðir málaðar og pússaðar.2020; þrír hitablásarar uppsettur í bílskýli. Skipt um hurðamótor í bílakjallara.2021;; Þakskipti á Þórðarsveigi 16.Akkur loftstokkar hússins hreinsaðir. Bílakjallari rafbílavæddur.Stutt í náttúruna, göngustígar við Reynisvatn, inn á Hólmsheiði og í Paradísardal. Í fárra mínútna göngufæri er golfvöllur GR , Grafarholtsvöllur, grunnskólar; Sæmundarskóli og Ingunnarskóli, leikskólinn Reynisholt, bakarí, sundlaug, Krónan, KFC, Húsasmiðjan, Blómaval, tvö apótek, Landsbankinn og Framvöllurinn. Örstutt í strætó.Allar nánari upplýsingar veitir Halla Unnur Helgadóttir í síma 659-4044, eða og/eða Elín Rósa Guðlaugsdóttir í síma 773-7126, eða Niðurlag: Virkilega falleg og björt 3ja herbergja íbúð, vel staðsett, sérinngangur af svölum. Stæði í bílageymslu, þvottahús innan íbúðar og öll þjónusta í göngufæri.Nánari upplýsingar veitir: Halla Unnur Helgadóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6594044, tölvupóstur eða Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.