Einbýlishúsið Sunnuvegur 4 í Langanesbyggð hvílir á 1.200 m2 leigulóð ásamt sérstæðum bílskúr og öllu er eigninni fylgir og fylgja ber að engu undanskildu, þ.m.t. lóðarréttindum.
Byggingarár hússins er árið 1976 og er það 133,7 m2 að stærð auk 35,4 m2 bílskúrs sem byggður var árið 1987. Íbúðarhúsið er steinsteypt, útveggir og gólfplata á einni hæð en útveggir í göflum við þakvirki eru hlaðnir með holsteini. Þakvirkið er timbur, kraftsperrur og niðurtekið kalt loft einangrað með glerull. Þakrýmið er loftræst gegnum lofttúður á gaflveggjum. Útveggir eru einangraðir að innan með múrhúð og múraðir að utan á hefðbundinn hátt eins og tíðkaðist á þeim tíma sem húsið var byggt. Húsið er upphitað með rafmagni, rafmagnsofnar eru í flestöllum rýmum. Nánari lýsing: Það eru 4 svefnherbergi í húsinu, stofa, stór gangur, 2 baðherbergi, annað þeirra er lítið rými bara klósett og vaskur en hitt er stærra með baðkari, aðalinngangur við lítið klósett, eldhús og þvottahús með inngangi sem virðist mest notaður. Sérstæður bílskúr stendur ca. 2 metra norðan við íbúðarhúsið.