Betri Stofan Fasteignasala kynnir: Suðurmýri 46 Seltjarnarnesi, glæsilegt 179,4 fm parhús á tveimur hæðum með bílskúr og stóru bílaplani fyrir 4 bíla. Húsið er hannað af Árna Þorvaldi Jónssyni arkitekt. Stórir gluggar og mikil lofthæð. Neðri hæð skiptist í forstofu, hol, þvottahús, baðherbergi, opið eldhús og stofur. Útgengi úr stofum á afgirtan pall sem snýr í suður. Efri hæð skiptist í stórt sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi öll með góðum skápum og eitt með útgengi út á þaksvalir sem eru 24 fm. Bílskúrinn er yfirfarin með endurnýjaðri bílskúrshurð og málaður að innan. Húsið frekar viðhaldslétt, álklætt að utan og þak læst álklæðning. Aðkoman að húsinu glæsileg, stórt plan fyrir fjóra bíla, bogadregið þak sem setur mikinn svip á heildarmyndina, gólfsíðir gluggar í stofu með útgengi út í suðurgarð sem er afgirtur. Húsið er laust til afhendingar strax.Nánari lýsing neðri hæðar:Forstofa með fataskápum. Rúmgott
þvottahús með snyrtilegri innréttingu, glugga og útgengi á lóð.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni og sturta. Snyrtilegt opið
eldhús með eyju og granít borðplötu. Í
stofu eru stórir gólfsíðir gluggar sem setja mikinn svip á eignina og alrýmið. Úr stofu er útgengi út í
suðurgarð sem er afgirtur og með palli.
Lýsing efri hæðar: Stigi á milli hæða er úr stáli og gleri og leyfir birtu að flæða inn í alrýmið. Alrýmið er nýtt sem
sjónvarpsstofa en möguleiki er að bæta við herbergi þarna samkvæmt teikningu. Það eru þrjú
svefnherbergi á efri hæð, eitt þeirra með útgengi á 24 fm
þaksvölum. Öll herbergin eru með skápum. Einnig er á efri hæð stórt
baðherbergi, flísalagt með hornbaðkari og snyrtilegri innréttingu.
Hiti í gólfum í votrýmum og eldhúsi, annars ofnakerfi. Parket og flísar á gólfum.Um er að ræða glæsilegt hús á eftirsóknum stað á Seltjarnarnesi sem hefur verið haldið ágætlega við og með næg bílastæði. Örstutt í alla helstu þjónustu, skóla, verslun og sundlaug Seltjarnarness.
Nánari upplýsingar veita:
Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.
Páll Þórólfsson löggiltur fasteignasali, í síma 8939929, tölvupóstur pall@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.