RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson aðstoðarmaður fasteignasala (sími 823 2641 & ) og Hörður Björnsson Lgf. kynna: Falleg og björt 3ja herb endaíbúð með suður svölum og sérinngangi af gangsvölum. Íbúðin er 91,0 fm og skiptist í stofu, 2 rúmgóð herbergi, eldhús, baðherbergi með þvottaaðstöðu, sér geym... Sýna meira
RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson aðstoðarmaður fasteignasala (sími 823 2641 & ) og Hörður Björnsson Lgf. kynna: Falleg og björt 3ja herb endaíbúð með suður svölum og sérinngangi af gangsvölum. Íbúðin er 91,0 fm og skiptist í stofu, 2 rúmgóð herbergi, eldhús, baðherbergi með þvottaaðstöðu, sér geymsla á hæðinni við hlið íbúðar. Stutt er í alla verslun og þjónustu, heilsugæslustöð, bókasafn, sundlaug, íþróttaaðstöðu, leikskóla og barna- og framhaldsskóla. * Fyrirhugað opið hús fellur niður - íbúðin er seld ** Mikill áhugi var á eigninni, ef þú átt sambærilega eign og ert í söluhugleiðingum er ég með kaupendur á skrá ** Fyrirhugað fasteignamat ársins 2024 er 54.300.000 kr. *Frekari upplýsingar veitir Júlían J. K. aðstoðarmaður fasteignasala í löggildingarnámi í síma 823 2641 eða á netfanginu .3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR - 3DFÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR. 2 góð svefnherbergi með skápum og rúmgóðar svalir í suður.Góð bílastæði eru við húsið og samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu fylgir bílskúrsréttur íbúðinni.Húsið hefur fengið gott viðhald og var sprunguviðgert og málað 2020, nýir gluggar voru settir í stigahús og nýtt þak á stigahúsið. Gaflar hússins eru klæddir.Lóð er snyrtileg og gróin. Rafmagn í íbúð yfirfarið 2021 og nýlegir ofnar í íbúðinni. Yfirfelldar eikarhurðir. NÁNARI LÝSING.Forstofa með flísum á gólfi. Hol með parketi á gólfi, þaðan er gengið inn í annað svefnherbergið. Eldhús er rúmgott, 12 fm., með hvítri innréttingu og góðum borðkrók.Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð, ca. 25 fm. með parketi á gólfi, útgengi er á stórar skjólgóðar 11 fm. suður svalir.Baðherbergi, er 6 fm., flísalagt, hvít innrétting, góður sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gluggi er á baðherberginu. Auka innbyggður fataskápur er á herbergisgangi.Hjónaherbergi er rúmgott, 13 fm., með stórum fataskápum og parketi á gólfi. Barnaherbergi, með fataskáp og plastparketi á gólfi, um 8 fm.Geymsla er á hæðinni við hlið íbúðar, rúmgóð með hillum. Sameiginlegt geymsluherbergi er í sameign á jarðhæð, þar sem hver er með sína hillu og þurrkherbergi þar sem eru tæki til bílaþvottar.Sameiginleg vagna- og hjólageymsla á jarðhæð.Mjög góð eign þar sem stutt er í leikskóla, skóla og aðra þjónustu í hverfinu auk fallegra gönguleiða um Elliðaárdal og nágrenni.Frekari upplýsingar veitir Júlían J. K. aðstoðarmaður fasteignasala í löggildingarnámi í síma 823 2641 eða á netfanginu .Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-