NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS
RE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu: Björt og vel skipulögð 3-4ra herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli við Suðurbraut 28 í Hafnarfirði. Eignin er skráð 91,4fm að stærð, þar af er 4fm sérgeymsla í sameign. Íbúðin hefur verið endurnýjuð að hluta á síðustu árum, m.a. með nýjum gólfefnum og eldhúsinnréttingu.
Íbúðin er björt í opnu alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, ásamt notalegu sjónvarpsholi sem auðvelt er að breyta í 3ja svefnherbergið. Útgangur er út á svalir sem snúa í suðaustur, sem tryggir góða birtu stóran hluta dagsins. 2 góð svefnherbergi, snyrtilegt baðherbergi ásamt sér þvottahúss innan íbúðar.
Nánari lýsing:Forstofa: Komið er inn í forstofu með fatahengi sem nýlega var útbúið. Harðparket er á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið er með dökkri innréttingu og góðu skápaplássi, en hún var endurnýjuð árið 2020. Eldhúsbekkir eru úr límtré sem voru endurnýjaðar 2025. Ofn er í vinnuhæð, barborð skilur eldhúsið frá borðstofu/stofu. Blöndunartæki voru endurnýjuð árið 2020.
Stofa og borðstofa: Er björt og opin með harðparketi á gólfi. Útgangur er á svalir sem snúa í suðaustur.
Herbergi I: Rúmgott svefnherbergi með harðparketi á gólfi og sexföldum fataskápum sem ná upp í loft.
Herbergi II: Gott svefnherbergi með harðparketi á gólfi ásamt tvöföldum fataskáp.
Setustofa/Herbergi III: Er rými sem í dag er nýtt sem setustofa en er opin inn í alrými. Upprunalega 3ja herbergi íbúðar sem auðvelt er að breyta aftur.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt með ljósum flísum á veggjum og gráum flísum á gólfi. Upphengt salerni, baðkari með sturtu í og hvítri innréttingu undir vaski ásamt veggskáp fyrir ofan. Handklæðaofn er á vegg.
Þvottahús: Sér þvottahús innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísum á gólfi ásamt innréttingu.
Svalir: Svalirnar snúa í suðaustur og bjóða upp á gott útsýni yfir nágrennið. Útgangur er á svalir frá stofu.
Geymsla: Sér 4fm geymsla fylgir íbúðinni og er hún staðsett í sameign á jarðhæð.
Sameign: Í sameign er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Staðsetning: Miðsvæðis í Hafnarfirði með stuttri leið í alla helstu þjónustu, verslanir og samgöngur. Um er að ræða fjölbýli í rólegu umhverfi.
Að sögn seljanda ásamt upplýsingum frá húsfélagi er viðhald eftirfarandi:2025 - Límtrésplötur settar á eldhúsbekki
2025 - Fatahengi útbúið í forstofu
2023 - Húsið múrviðgert og málað
2020 - Skipt út gólfefnum (harðparket, flísar á blautrýmum).
2020 - Skipt út eldhússkápum
2020 - Blöndunartæki í eldhúsi
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.600 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.