Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu mjög fallega, bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð (eina íbúðin á hæðinnni) með gluggum í þrjár áttir og um 35 fermetra afgirtri viðarverönd til suðurs og austurs í nýlega viðgerðu og máluðu fjölbýlishúsi miðsvæðis í Hafnarfirði. Sérmerkt bílastæði á lóð fylgir íbúðinni.
- Innihurðir eru allar nýlegar.
- Parket var allt slípað upp og lakkað árið 2023
- Nýtt spanhelluborð og gufugleypir
- Ný hurð út á verönd með læsingu
Lýsing eignar:Forstofa, parketlögð.
Eldhús, parketlagt og með glugga til suðurs. Fallegar hvítar nýlegar innréttingar með innbyggðum ísskáp með frysti, tengi fyrir uppþvotttavél og nýlegu spanhelluborði og háfi.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með miklum gluggum og útgengi á stóra afgirta viðarverönd til suðurs og austurs og þaðan út á sameiginlega lóð.
Gangur, parketlagður.
Sjónvarpshol, parketlagt.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, baðkar með sturtuaðstöðu og nýleg innrétting.
Þvottaherbergi, flísalagt gólf og vinnuborð.
Barnaherbergi, parketlagt.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt með gluggum í tvær áttir og miklum fataskápum á heilum vegg.
Sérgeymsla, er við hlið íbúðarinnar og er hún 3,5 fermetrar að stærð.
Sameiginleg hjólageymsla er á hæðinni, mjög rúmgóð með gluggum og útgengi á framlóð hússins.
Húsið að utan lítur vel út og var múrviðgert og málað árið 2023 auk þess sem þakjárn var allt yfirfarið og málað. Engar framkvæmdir eru fyrirliggjandi við húsið að utan.
Lóðin er fullfrágengin og með stóru malbikuðu bílastæði fyrir framan hús með fjölda bílastæða, en baklóð er tyrfð.
Staðsetning eignarinnar er góð og stutt er í leikskóla, skóla, sundlaug, verslanir og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is