LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallega, bjarta og einstaklega vel skipulagða 4.herbergja 118 m2 íbúð á efstu hæð ( aðeins 2 hæðir upp, engin lyfta ) með tæplega 5 metra lofthæð í alrými, við Strandveg 14 í Garðabæ (Sjálandshverfi). Þvottahús innan íbúðar. Stæði í bílageymslu fylgir eigninni. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 110,6 m2 ásamt 7,4 m2 geymslu. Allt innbú fylgir með í kaupunum fyrir utan persónulega muni.
Nánari lýsing.Forstofan er með fataskáp og parketlögðu gólfi.
Stofa-borðstofa með stórum gólfsíðum gluggum og útgengi út á svalir til vesturs.
Eldhúsið er með fallegri eikar innréttingu með gleri á milli skápa, innbyggð uppþvottavél og gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu,, AEG ofn í vinnuhæð. Rúmgóð eyja með AEG keramik helluborði með viftuháf yfir.
Hjónaherbergi með eikarfataskáp á heilum vegg og parketi á gólfi, gólfsíður gluggi.
Tvö barnaherbergi með gólfsíðum gluggum og eikarfataskápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum nánast upp í loft. Upphengt salerni og handklæðaofn. Eikar innrétting með vaski ofan á og spegli fyrir ofan, stór eikarskápur, baðkar með sturtu.
Þvottahús með flísum á gólfi og skolvaski, Hár skápur. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er í sameign með epoxi málningu á gólfi.
Stæði er í bílageymslu ásamt hjólageymslu. Eignin er staðsett í Sjálandshverfinu og er stutt í alla nauðsynlega þjónustu. Barnvænt umhverfi. Leikskóli og grunnskóli. Ylströnd, hjóla- og göngustígar og falleg náttúra einkenna svæðið. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignaali í síma 822 2123 eða