Valborg fasteignasala kynnir; Strandgötu 7, Stokkseyri.Glæsilegt einbýlishús ásamt bílskúr og grónum garði, stórum palli og gestahúsi á baklóð.Þrjú svefnherbergi, bílskúr með aukaherbergi, gott hellulagt bílaplan.Eign staðsett í hjarta bæjarins.Eignin er samtals 162,30 m2 samkvæmt skráningu Þjóðskrá... Sýna meira
Valborg fasteignasala kynnir; Strandgötu 7, Stokkseyri.Glæsilegt einbýlishús ásamt bílskúr og grónum garði, stórum palli og gestahúsi á baklóð.Þrjú svefnherbergi, bílskúr með aukaherbergi, gott hellulagt bílaplan.Eign staðsett í hjarta bæjarins.Eignin er samtals 162,30 m2 samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.Íbúðarhlutinn er 118,4 m2 og telur forstofu, forstofuherbergi, hjónaherbergi, lítið herbergi/geymslu, baðherbergi, stofu, eldhús og þvottahús.Bílskúrinn er 43,9 m2 og hefur verið stúkað af herbergi í honum.Upplýsingar veitir Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300 eða gegnum netfangið .Nánari lýsing:Flísalagt anddyri með góðum fataskáp.Rúmgott forstofuherbergi með fataskáp.Komið inn á gang sem leiðir að öðrum vistaverum hússins.Hjónaherbergi með góðum fataskáp. Gluggar á tvo vegu. Herbergi/geymsla með litlum glugga.Rúmgott baðherbergi með wc, innréttingu með handlaug, baðkari og sturtu.Stór stofa með útgengi á afgirtan pall til suðurs.Eldhús með rúmgóðri u-laga innréttingu með nýjum ofni, nýju helluborði og viftu, tengi fyrir uppþvottavél.Rúmgóður borðkrókur/borðstofa í sama rými. Miklir og bjartir gluggar vísa í bakgarð.Þvottahús með innréttingu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Lítið geymsluloft. Útgengt í bakgarð.Bílskúr er 43,9 m2 en honum hefur verið skipt niður í geymslu, gang og herbergi með glugga.Geymsluloft yfir herbergi og gangi.Hellulögð bílastæði fyrir framan bílskúr rúma nokkra bíla.Geymsluskúr í bakgarði er einangraður og upphitaður. Nýtist sem gestahús eða geymsla. Annar lítill skúr á baklóð með tengi fyrir kalt vatn.Lóð með töluverðum trjágróðri, tjörn og miklum palli bakatil. Skjólveggir veita mikið og gott skjól.Gólfhiti er í eigninni. Gólfefni:Flísar á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi.Parket á gangi, stofu og eldhúsi. Hluti stofu flísalagður.Plastparket á herbergjum.Byggingarár er skráð 2001. Byggingarefni er timbur. Nánari upplýsingar veitir Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 8233300, tölvupóstur .Aðrar eignir sem við seljum má sjá hér.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegumkaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.