Fasteignasalan Hvammur 466 1600Stórholt 4 efri hæð - Björt og falleg 4ra herbergja efri hæð í tvíbýli með útleigumöguleika í kjallara - stærð 117,5 m²Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús og geymslu/búr.
Eigninni tilheyrir einnig gott rými í kjallara, sem er ekki er skráð í fermetrafjölda eignarinnar, um 45 m²
Forstofa er með nýlegum flísum á gólfi og fatahengi. Þaðan eru tröppur upp á hæðina.
Stofa og
borðstofa eru í rúmgóðu rými með nýlegu parketi. Úr stofu er hægt að ganga út á svalir.
Í
eldhúsi eru flísar á gólfi. Hvít innrétting með bekkplötu úr svörtum steini, og flísum á milli skápa. Uppþvottavél innan eldhúss fylgir með við sölu eignar.
Á
baðherbergi eru flísar á gólfi og veggjum. Lítil innrétting, baðkar með sturtutækjum og vegghengt klósett. Þar er einnig opnanlegur gluggi.
Svefnherbergin eru þrjú talsins, öll með parketi á gólfum. Í rúmgóðu hjónaherberginu er hvítur, upprunalegur fataskápur með rennihurðum.
Þvottahús er inn af eldhúsi. Þar eru flísar á gólfi, gott skápapláss, vaskur og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla/búr er með flísum á gólfi og hillum.
Í
kjallararými er baðherbergi, svefnherbergi og alrými, hentugt til útleigu.
Gangur er flísalagður, þar er opnanlegur gluggi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, klósetti og sturtu.
Í alrými er flotað gólf. Þar er einnig fín eldhúsinnrétting með litlum kæliskáp sem fylgir með við sölu. Inn af alrýminu er góð geymsla með lökkuðu gólfi og vinnuborði.
Svefnherbergi er með parketi á gólfum og opnanlegum glugga.
Annað- Hiti er í gólfi í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi.
- Skipt var um parket 2024 og flísar í forstofu 2025.
- Húsið var málað að utan 2024.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Hluti innbús í kjallara getur fylgt með við sölu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.